Moyes ældi alla leiðina til Eyja Sindri Sverrisson skrifar 16. desember 2025 11:02 David Moyes lumar eflaust á skemmtilegum sögum frá dvöl sinni sem táningur í Vestmannaeyjum. Getty/Gareth Copley David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, svaraði spurningum stuðningsmanna á Youtube-rás félagsins og var meðal annars spurður út í tengsl sín við ÍBV.
Í spurningunni til Skotans var spurt hvernig það hefði komið til að hann spilaði fyrir ÍBV á Íslandi í yngri flokkum, og hvernig það hefði verið fyrir ungan mann að vera á Íslandi á 8. áratugnum. Moyes svaraði því til að hann hefði nú reyndar aldrei spilað fyrir ÍBV en að hann hefði æft þar um sumar, sem hann vissulega gerði en þó reyndar með Tý sem síðar sameinaðist Þór og úr varð ÍBV. Hann var þá að elta pabba sinn, David Moyes eldri, en feðgarnir mynduðu sterk vináttutengsl við Ísland. „Sannleikurinn er að ég spilaði aldrei fyrir ÍBV. Ég var bara 15 eða 16 ára og fjölskyldan mín átti í miklu sambandi við Ísland,“ sagði Moyes í svari sínu á Youtube-rás Everton á dögunum og útskýrði betur veru sína í Eyjum: „Þetta voru skiptiferðir þar sem pabbi minn fékk fótboltalið frá Íslandi og Íslendingar tóku á móti skoskum liðum. Ég var því ungur að árum nokkuð oft á Íslandi og varði sumrunum þar. Ég var ekki að þjálfa en ég var ungur leikmaður hjá Celtic á þessum tíma og var spurður hvort ég vildi þjálfa eitthvað, og það var í Vestmannaeyjum. Það var mikið talað um að ég hefði spilað fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum en ég gerði það ekki,“ sagði Moyes og bætti svo við léttur í bragði: „En ég man svo sannarlega eftir bátsferðinni frá Reykjavík yfir, því ég held að ég hafi ælt alla leiðina.“ Hinn 62 ára gamli Moyes hefur átt farsælan feril sem knattspyrnustjóri og bestum árangri náð með Everton sem hann tók við á ný í byrjun þessa árs, eftir að hafa áður stýrt því árin 2002-2013. Hann hefur einnig stýrt Manchester United, Real Sociedad, Sunderland og West Ham. Moyes er nú með Everton í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, eftir fjóra sigra í síðustu sex leikjum þar sem liðið hefur auk þess haldið marki sínu hreinu í öllum fjórum sigurleikjunum. Everton er tveimur stigum frá mögulegu Meistaradeildarsæti en á erfiðan leik fyrir höndum gegn Arsenal á laugardagskvöld.
ÍBV Everton FC Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira