Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram ÍBV er áfram með fullt hús stiga í Bestu-deild kvenna í fótbolta en nýliðarnir höfðu betur með tveimur mörkum gegn engu þegar liðið fékk Þór/KA í heimsókn á Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum í dag. Íslenski boltinn 10.5.2026 13:18
KA - ÍBV | Hrökk KA í gang við sigurinn á Þór? Hér fer fram bein textalýsing frá leik KA og ÍBV í 6.umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á Greifavellinum á Akureyri klukkan hálf fimm. Leikurinn er sýndur i beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Íslenski boltinn 10.5.2026 15:45
ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns Handknattleiksdeild ÍBV hefur verið gerð sekt sem nemur 150 þúsund krónum sökum vítaverðrar og ósæmilegrar hegðunar stuðningsmans liðsins á leik í úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna milli ÍBV og Vals. Handbolti 10.5.2026 15:34
Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Handbolti 9.5.2026 16:15
Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Valur er komið 2-0 yfir í úrslitaeinvígi sínu gegn ÍBV í Olís deild kvenna í handbolta eftir tveggja marka sigur 25-23 í Vestmannaeyjum í kvöld. Valskonur geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í næsta leik liðanna á Hlíðarenda. Handbolti 5. maí 2026 20:09
Geta unnið 22. leikinn í röð: „Þetta verður stál í stál“ Valur og ÍBV mætast öðru sinni í úrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld. Valskonur eru með 1-0 forystu í einvíginu og hefur gengið allt í haginn að undanförnu. Þjálfari Vals er þó með báða fætur á jörðinni og meðvitaður um styrk ÍBV. Handbolti 5. maí 2026 15:01
Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ „Þetta var erfitt, mjög erfitt í dag. Við gerðum okkur erfitt fyrir og byrjuðum mjög illa. En það er karakter að koma til baka og ná að sigla þessu heim,“ segir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-1 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í fimmtu umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 3. maí 2026 18:46
ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Breiðablik vann 2-1 sigur á ÍBV í litlausum leik í fimmtu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hásteinsvelli í dag. Þeir fara upp í annað sæti með sigrinum. Íslenski boltinn 3. maí 2026 18:10
„Ég þarf meira frá mínum reynslumestu mönnum en þetta“ „Við köstum þessu frá okkur,“ sagði Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, súr og svekktur eftir tap í fyrsta leik um Íslandsmeistaratitilinn gegn Val. Lokatölur 39-33, en gestirnir frá Eyjum komust fimm mörkum yfir snemma í síðari hálfleik og því um ellefu marka sveiflu að ræða á 25 mínútna kafla. Handbolti 2. maí 2026 17:12
Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik Valur vann ÍBV í fyrsta leik úrslitaeinvígis um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta á Hlíðarenda í dag. Eyjakonur voru yfir í hálfleik en heimakonur voru sterkari eftir því sem leið á og unnu sex marka sigur, 39-33. Handbolti 2. maí 2026 16:30
„Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV í handbolta, gerir athugasemdir við starfshætti HSÍ í aðdraganda úrslitaeinvígis ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn. Stjórn sambandsins bregðist skyldum sínum gagnvart barnungum iðkendum. Handbolti 2. maí 2026 13:05
Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum ÍBV vann frábæran 3-2 heimasigur á Víkingi í lokaleik annarrar umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Sigurinn vannst eftir að ÍBV hafði lent 2-0 undir. Íslenski boltinn 1. maí 2026 20:01
Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Nýliðarnir frá Vestmannaeyjum sigruðu Víkinga 3-2 í leik tveggja hálfleika í 2. umferð Bestu deildar kvenna. Víkingur mætti til Eyja eftir langt og strembið ferðalag og var ljóst að rokið myndi hafa töluverð áhrif á leikinn. Íslenski boltinn 1. maí 2026 12:16
Gætu endað í þyrlu til Eyja Forráðamenn Breiðabliks eru með það til skoðunar að koma leikmönnum með þyrlu til Vestmannaeyja á sunnudag, fyrir leikinn við ÍBV í Bestu deild karla, vegna óvissunnar um samgöngur til Eyja. Íslenski boltinn 30. apríl 2026 17:27
Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Eyjakonur komust með ævintýralegum hætti áfram í úrslitaeinvígi Olís-deildarinnar í handbolta en í oddaleiknum gegn Haukum urðu þær hins vegar fyrir gríðarmiklu áfalli. Handbolti 30. apríl 2026 15:53
Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum ÍBV tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn eftir 36-31 sigur á Haukum í kvöld eftir æsispennandi tvíframlengdan leik. Handbolti 28. apríl 2026 17:26
„Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Eyjamaður sem var um borð í tæplega sex tíma siglingu Herjólfs í gærkvöldi segir stöðuna í samgöngumálum Vestmannaeyja vera ömurlega. Börn á vegum ÍBV ferðuðust í tæpa tuttugu tíma í gær til að keppa handboltaleik á Selfossi. Innlent 28. apríl 2026 11:12
Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Mörkum rigndi í regnvotu veðri í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Alls voru 26 mörk skoruð í fimm leikjum er fjórða umferð deildarinnar kláraðist. Íslenski boltinn 28. apríl 2026 08:31
Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Alexander Linta segir stjórn knattspyrnudeildar ÍBV vera að leita að styrkingu fyrir leikmannahóp liðsins í Bestu deild karla. Eyjamenn hafa fengið á sig ellefu mörk í síðustu tveimur leikjum. Íslenski boltinn 27. apríl 2026 20:37
Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Fram fagnaði 5-1 sigri gegn ÍBV í 4. umferð Bestu deildar karla. Róbert Elís Hlynsson klóraði í bakkann fyrir Eyjamenn með marki beint úr aukaspyrnu en annars voru yfirburðir Fram algjörir. Íslenski boltinn 27. apríl 2026 16:47
Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Nýliðar ÍBV byrjuðu tímabilið á því að vinna frækinn sigur á Fram, 4-3, í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Íslenski boltinn 25. apríl 2026 14:55
Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Haukar sigruðu ÍBV 26-23 í hörkuleik á Ásvöllum í dag. Staðan í einvíginu er því 2-2 og liðin mætast aftur næstkomandi þriðjudag í Vestmannaeyjum um sæti í úrslitunum. Handbolti 25. apríl 2026 14:15
Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV ÍBV hefur bætt við sig leikmanni fyrir komandi átök í Bestu deild karla í fótbolta. Hinn tvítugi Sturla Sagatun Kristjánsson kemur til liðsins frá Bodö/Glimt. Íslenski boltinn 24. apríl 2026 17:45
„Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ „Ef að þeir spila svona í sumar þá fara þeir beint niður,“ sagði Albert Brynjar Ingason ómyrkur í máli þegar hann ræddi um Eyjamenn, í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, eftir 6-2 tap ÍBV gegn KR í Bestu deild karla. Hann segir einn mann ómissandi hjá ÍBV. Íslenski boltinn 24. apríl 2026 14:46
Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ Aron Sigurðarson var besti maður vallarins í frábærri frammistöðu KR sem vann 6-2 stórsigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Þrátt fyrir það var pirringur ofar gleði eftir leik. Íslenski boltinn 23. apríl 2026 16:06