Viðskipti erlent

Banda­ríkja­menn banna inn­flutning dróna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
DJI drónar eru einna vinsælastir.
DJI drónar eru einna vinsælastir. Getty

Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, hefur sett bann á innflutning erlendra dróna til landsins. Drónar framleiddir í Kína hafa lengi verið ráðandi á bandarískum markaði.

FCC hefur sett dróna sem framleiddir eru fyrir utan Bandaríkin á lista yfir aðila sem taldir eru „óásættanleg áhætta fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna“. Meðal framleiðenda er DJI, stærsti drónaframleiðandi heims sem kemur frá Kína.

FCC sagðist hafa byggt bannið á niðurstöðu fjölþjóðlegrar nefndar á vegum Bandaríkjamanna. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að drónar erlendis frá og íhlutir þeirra gætu gert öðrum kleift að vera með viðvarandi eftirlit, safnað persónulegum gögnum og framkvæmt eyðileggjandi aðgerðir á bandarísku yfirráðasvæði.

„Trump forseti hefur verið skýr um að ríkisstjórn hans muni fara í aðgerðir til að vernda lofthelgi okkar frá drónum og auka innlenda framleiðslu á drónum,“ sagði Brendar Carr, formaður stjórnar FCC á samfélagsmiðlinum X.

Í júní skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti undir forsetatilskipun um að flýta fyrir markaðssetningu drónatækni og að auka innlenda drónaframleiðslu til að koma í veg fyrir erlenda stjórn eða misnotkun.

Enn má festa kaup á drónum sem hafa þegar verið fluttir til landsins og nota þá sem þegar hafa verið keyptir.

Ákvörðunin ekki byggð á sönnunargögnum

Forsvarsmenn DJI hafa lýst yfir óánægju með ákvörðun Bandaríkjanna en samkvæmt CNN sér fyrirtækið um sjötíu prósent af heimsmarkaðinum þegar kemur að drónasölu.

„Áhyggjur af gagnaöryggi DJI hafa ekki verið byggðar á sönnunargögnum og endurspegla heldur verndarstefnu, sem stríðir gegn meginreglum opins markaðar,“ sagði talsmaður DJI.

Undanfarið ár hafa forsvarsmenn DJI ítrekað sent bandarískum ráðamönnum bréf, þar á meðal Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Sú vinna virðist hafa borið lítinn árangur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×