Settu upp skautavelli inni á einum flottasta fótboltaleikvangi Spánar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2026 13:03 Riyadh Air Metropolitano-leikvangurinn í Madrid líkist ekkert fótboltavelli þessa dagana. Getty/Diego Radames Spænska deildin tók sér smá frí yfir jól og áramót og það eru því engir stórir fótboltaleikir þessa dagana á heimavelli Atlético Madrid. Spænska félagið ákvað að nýta leikvanginn í annað á meðan.
Atlético Madrid spilaði í gærkvöldi á móti Real Madrid í spænska Ofurbikarnum en þeir leikir fóru fram í Sádi-Arabíu en ekki á Spáni. Þetta var því kjörið tækifæri fyrir Atlético-fólk að setja upp stærsta skautasvell Evrópu inni á heimavelli sínum. Þetta er að verða að árlegri hefð því félagið gerði hið sama í fyrra. Skautasvelið er yfir fjögur þúsund fermetrar að stærð, staðsett í kringum grasvöllinn og einnig á efri palli. Miðinn kostar sextán evrur fyrir þá sem vilja skauta og sex evrur fyrir þá sem kjósa að koma bara inn á völlinn og horfa á. Það jafngildir rúmum 2300 krónum fyrir dýrari miðann og tæpum níu hundruð krónum fyrir þann ódýrari. Auk skautasvellsins eru verslanir og veitingastaðir fyrir gesti á svæðinu, auk opinberrar skoðunarferðar um völlinn og hinnar opinberu verslunar félagsins, sem einnig er opin eins og venjulega. Atlético Madrid spilar næst á Riyadh Air Metropolitano-leikvanginum sínum þann 18. janúar en það er leikur í tuttugustu umferð spænsku deildarinnar gegn Alavés. View this post on Instagram A post shared by Gustavo Hofman (@gustavohofman)
Spænski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Sjá meira