Af hverju efast fólk enn – þegar loftslagsvísindin eru skýr? Eyþór Eðvarðsson skrifar 10. janúar 2026 08:33 Um skipulagðan áróður, hugmyndafræði og áskoranir fyrir lýðræðið Loftslagsbreytingar eru meðal best rannsökuðu viðfangsefna samtímans. Samstaða vísindamanna um að hnattræn hlýnun sé raunveruleg og að mestu af mannavöldum er yfirgnæfandi. Samt birtast stöðugt bækur, greinar, færslur og ummæli sem sá efasemdum um grundvallaratriði loftslagsvísinda. Þessi verk eru gjarnan kynnt sem sjálfstæð og gagnrýnin umfjöllun, en endurtaka í reynd kunnugleg rök og aðferðir sem áður hafa verið notaðar á kerfisbundinn hátt til að grafa undan vísindalegri samstöðu, meðal annars í umræðu um skaðsemi reykinga, eyðingu ósonlagsins og aðrar umhverfisógnir. Þótt slík rit standi gjarnan utan ritrýnds vísindakerfis hafa þau umtalsverð áhrif á opinbera umræðu og traust almennings á vísindum. Algeng skýring sem dugar ekki Algeng skýring á loftslagsefasemdum er sú að almenningur skilji vísindin illa eða misskilji eðli vísindalegrar óvissu. Þótt það geti átt við í einstaka tilfellum er sú skýring langt frá því að vera fullnægjandi. Þegar horft er til sögunnar og rannsókna á orðræðu í kringum umdeild vísindamál blasir önnur mynd við: efasemdir spretta sjaldnast sjálfkrafa upp í samfélaginu. Þær eru oft markvisst ræktaðar. Sagan endurtekur sig – óvissa sem aðferð Á seinni hluta 20. aldar var ítrekað reynt að grafa undan vísindaniðurstöðum sem ógnuðu öflugum efnahagslegum hagsmunum. Þegar tengsl reykinga og lungnakrabbameins urðu óumdeilanleg brugðust tóbaksfyrirtæki ekki við með því að hrekja vísindin, heldur með því að framleiða óvissu. Þau fjármögnuðu eigin „rannsóknir“, réðu vísindamenn til sín sem efuðust um niðurstöður meginstraumsins og héldu því fram að málið væri „ekki enn sannað“. Sama uppskrift var notuð í umræðu um eyðingu ósonlagsins og síðar um súrt regn. Þessi saga er rakin í bókinni Merchants of Doubt eftir Naomi Oreskes og Erik M. Conway. Þar er sýnt fram á hvernig litlir en áhrifamiklir hópar beittu sömu aðferðum aftur og aftur. Markmiðið var ekki að vinna fræðilega rökræðu, heldur að hafa áhrif á og tefja pólitískar ákvarðanir. Óvissa varð að vopni. Hluti þessarar aðferðar fólst jafnframt í því að þrýsta á fjölmiðla um að „sanngirni“ væri gætt, sem í framkvæmd gat þýtt að jaðarskoðanir fengju sama vægi í umræðu og niðurstöður sem studdust við yfirgnæfandi vísindalega samstöðu. Vísindalegt yfirbragð án vísinda Í áhrifaherferðum gegn loftslagsvísindum er algengt að beita valkvæðri notkun gagna („cherry picking“), þar sem stakar mælingar eða afmörkuð tímabil eru dregin fram án heildarsamhengis. Þannig fæst „hentug“ niðurstaða sem uppfyllir ekki þær kröfur sem stofnanir á borð við Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) styðjast við. Samhliða þessu hefur verið reynt að skapa þá tilfinningu að víðtækur vísindalegur ágreiningur ríki þótt slíkur ágreiningur sé í raun ekki til staðar. Þekktasta dæmið er svonefnd Oregon Petition þar sem því var haldið fram að yfir 30.000 vísindamenn væru ósammála þeirri niðurstöðu að loftslagsbreytingar væru af mannavöldum. Við nánari skoðun kom í ljós að margt var athugavert við undirskriftarlistann. Hann var ekki sannreyndur og á listanum voru nöfn á borð við Charles Darwin. Langflestir þeirra sem skrifuðu undir höfðu enga sérþekkingu á loftslagsvísindum. Skilaboðin voru þó einföld og markmiðið skýrt: búa til efa um vísindalegar niðurstöður. Af hverju efasemdir lifa áfram – frelsi, markaður og sjálfsmynd Þótt uppruni margra rangfærslna megi rekja til skipulagðs áróðurs lifa efasemdir ekki áfram nema þær festist í menningu, sjálfsmynd og pólitík. Með tímanum losna rökin frá uppruna sínum og verða sjálfbær. Þau eru endurtekin í samfélagsumræðu og sett fram sem merki um yfirvegaða, gagnrýna hugsun. Rannsóknir í hugrænni sálfræði og stjórnmálasálfræði sýna að afstaða fólks til loftslagsvísinda mótast oft síður af mati á eðlisfræðilegum gögnum en af undirliggjandi hugmyndafræðilegum gildum. Fyrir marga sem leggja ríka áherslu á einstaklingsfrelsi, sjálfræði og óheftan markað verða loftslagsvísindi tortryggileg ekki vegna vísindalegra veikleika, heldur vegna þeirra samfélagslegu og pólitísku afleiðinga sem niðurstöðurnar eru taldar hafa. Í slíkum aðstæðum færist umræðan gjarnan frá spurningum um loftslag og losun yfir í ágreining um vald, ríkisafskipti og framtíðarsýn samfélagsins. Í þessu samhengi skiptir máli að hafa í huga að skipulögð hagsmunaöfl sem vinna gegn loftslagsaðgerðum hafa um árabil veitt fjárhagslegan og skipulagslegan stuðning félagasamtökum, hugveitum og áhrifavöldum sem aðhyllast slíka frjálshyggjulega heimsmynd. Þannig verða hugmyndafræðileg mótstaða og efnahagslegir hagsmunir samverkandi afl sem viðheldur efasemdum og tefur nauðsynlegar aðgerðir, þrátt fyrir skýran vísindalegan grundvöll. Hagsmunaaðilar hindra framfarir Á loftslagsráðstefnunni COP30 í Belém í nóvember 2025 kom skýrt fram hvernig hagsmunaaðilar úr jarðefnaeldsneytisiðnaðinum hafa aðgang og áhrif langt umfram það sem eðlilegt má teljast. Samkvæmt greiningu The Guardian voru yfir 1.600 fulltrúar tengdir olíu, gasi og kolum skráðir til þátttöku, eða um einn af hverjum 25 þátttakendum. Christiana Figueres, fyrrverandi framkvæmdastjóri UNFCCC og einn helsti arkitekt Parísarsamningsins, ásamt António Guterres framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og fjöldi IPCC-vísindamanna, hafa ítrekað varað við því að víðtækur aðgangur hagsmunaafla jarðefnaeldsneytis að loftslagsviðræðum tefji nauðsynlegar aðgerðir og veiki metnað samninganna. Climate Action Network, regnhlífarsamtök yfir 1.900 umhverfis- og borgarasamtaka, hafa tekið í sama streng og líkt stöðunni við það að tóbaksiðnaðurinn hefði setið við borðið í alþjóðlegum samningum um lýðheilsu — samlíking sem undirstrikar hversu alvarlegur hagsmunaáreksturinn er. Áskorun fyrir lýðræðið Á sama tíma og vísindin hafa aldrei verið skýrari hefur áhugi á loftslagsmálum dvínað. Í síðustu alþingiskosningum spurðu fjölmiðlar lítið sem ekkert út í loftslagsaðgerðir, þrátt fyrir að um eitt stærsta viðfangsefni samtímans sé að ræða. Loftslagsstefnur stjórnmálaflokkanna eru veikburða og áherslur ríkisstjórnarinnar ekki í samræmi við alvarleika vandans. Aðgerðaleysi er ekki hlutlaus afstaða heldur pólitísk ákvörðun sem þjónar fyrst og fremst þeim hagsmunum sem vilja að ekkert breytist. Við getum gert betur. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Loftslagsmál Mest lesið Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson Skoðun STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Ísland og nýja djobbið Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Raunhæf áætlun um endurheimt íslenskra fiskimiða Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þrír af hverjum fjórum Íslendingum styðja dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Logason skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Er Ísland orðið of dýrt fyrir venjulegt líf? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun
Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Kosningaþynnkan: Gervigreind er svarið við hækkandi álögum Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir Skoðun