Hefja átak í bólusetningu drengja gegn HPV veirunni Lovísa Arnardóttir skrifar 10. janúar 2026 14:18 Drengir í 2010-árgangnum verður boðin bólusetning í grunnskólanum sínum en árgangar 2009 og 2008 eru útskrifaðir og því verður leitað til þeirra með boð með öðrum leiðum. Vísir/Vilhelm Sóttvarnalæknir boðaði í vikunni að það ætti að hefja átak um bólusetningu drengja gegn HPV Bólusetningin er gjaldfrjáls fyrir drengi sem eru fæddir árin 2008 til 2010. Langalgengasta krabbameinið sem tengist HPV er leghálskrabbamein en hjá karlmönnum er krabbamein í koki einnig algengt og tengist HPV-veirunni sömuleiðis.
Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu um þátttöku í almennum bólusetningum barna hafa aðeins 150 drengir úr árgangi 2008 þegið bólusetninguna, 176 í árgangi 2009 en svo 1.630 í árgangi 2010. Í árgangi 2011 hafa 2.440 drengir þegið bólusetninguna til samanburðar en þeir eru í fyrsta árgangi drengja sem var boðin slík bólusetning án endurgjalds. Stúlkur í þessum árgöngum voru bólusettar 2020 til 2022 en á þeim tíma var bólusetning drengja ekki almenn. Tilkynnt var um átakið á vef stjórnarráðsins og fjallað nánar um það á vef sóttvarnalæknis. Átakið beinist að því að sem flestir einstaklingar fái HPV-bóluefni og verður því einungis þeim piltum í árgöngum 2008 til 2010 sem enga bólusetningu hafa fengið gegn HPV boðið bóluefni án endurgjalds. Krabbamein í koki en ekki leghálsi Í tilkynningu ráðuneytisins kom fram að sýnt hafi verið fram á að bólusetning við HPV sé mikilvæg leið til að fækka krabbameinstilfellum. Bólusetning gegn HPV-veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst eingöngu hjá stúlkum en hefur síðan verið útvíkkuð og fyrir tveimur árum var farið að bjóða slíka bólusetningu óháð kyni fyrir tiltekna aldurshópa. „Bóluefni gegn HPV beindust fyrst og fremst gegn leghálskrabbameini til að byrja með, enda er það langalgengast krabbameina sem tengjast HPV, en bóluefnin hafa sannað gildi sitt gegn HPV-sýkingum óháð kyni. Krabbamein sem tengjast HPV-sýkingum önnur en leghálskrabbamein eru sum algengari hjá körlum en konum, má þar nefna HPV-tengd krabbamein í koki. Þess vegna hófust bólusetningar gegn HPV-sýkingum óháð kyni hér fyrir um þremur árum,“ segir í tilkynningu Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hafi svo ákveðið síðasta sumar að veita fjármagni til HPV-bólusetningar fyrir óbólusetta drengi upp í 18 ára aldur. Átak fyrir árgang 2010 fór af stað hjá heilsugæslu síðastliðið haust og nú fer að koma að árgöngum sem komnir eru á næsta skólastig. Drengirnir búnir með grunnskóla Árgangur 2010 fékk boð í bólusetningu gegnum heilsugæslu nú í haust en árgöngum 2008-2009 verður boðin bólusetning síðar í vetur. Fram kemur í tilkynningu sóttvarnalæknis að vegna þess að þessir árgangar hafa lokið sinni grunnskólagöngu séu þeir sjálfstæðir hvað varðar heilbrigðisþjónustu. Upplýsingagjöf til þeirra árganga gegnum Mínar síður Heilsuveru verði háð því að piltarnir hafi rafræn skilríki og noti sjálfir Heilsuveru. Heilsugæsla í framhaldsskólum er með öðrum hætti en í grunnskólum, en heilsugæslan kemur að upplýsingagjöf um átakið og e.t.v. verða bólusetningar í boði í skólunum sem verður þá kynnt sérstaklega þar sem það á við. Piltar sem ekki eru í skóla eru hvattir til að fylgjast með vefsíðu heilsugæslu sem þeir eru skráðir hjá og/eða þar sem þeir eru búsettir varðandi tilkynningar um hvernig bólusetningum verður háttað þar. Heilsugæslan á hverju svæði mun birta upplýsingar um hvenær boðið verður upp á HPV-bólusetningar á heilsugæslustöðvunum fyrir þessa árganga og hvernig fyrirkomulag verður með bókanir o.þ.h. þegar það hefur verið ákveðið, væntanlega fyrir áramót.
Heilbrigðismál Bólusetningar Börn og uppeldi Krabbamein Mest lesið Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fleiri fréttir Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastala tók á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Sjá meira