„Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. janúar 2026 14:33 Ólöf og Magnús skemmtu sér konunglega í Miami ef marka má frásagnir Ólafar. Vísir/Vilhelm/Ívar Almannatengillinn Ólöf Skaftadóttir hafði það náðugt með Magnúsi sínum Ragnarssyni, formanni Tennissambands Íslands, á Trump National Doral í Miami í Flórída yfir hátíðarnar. Rúmlega 25 ára aldursmunurinn á þeim tveimur var ekkert í líkingu við aldursmun annarra para á hótelinu.
Ólöf greindi frá þessu í fyrsta þætti af fjórðu seríu hlaðvarpsins Komið gott, sem hún heldur úti með Kristínu Gunnarsdóttur, sem kom út 7. janúar síðastliðinn. Stelpurnar fóru um víðan völl að vanda og rifjuðu meðal annars upp fjölsótta sýningu sína í Austurbæjarbíói í byrjun desember þar sem Magnús Ragnarsson steig einmitt villtan dans með hópi stjórnmálamanna. Ásgeir Guðmundsson, vert á Röntgen og Austurbæ, fékk sérstakt hrós frá Kristínu í nýjasta þættinum í tengslum við viðburðinn: „Þetta er frekasti hommi veitingageirans og hann er svona borgarstjóri næturlífsins.“ „Ég lauk líka árinu með honum, eða svona nánast, í Dóminíska lýðveldinu. Við vorum þarna annar hvor hópur fólks og við vorum bæði í Dóminíska lýðveldinu og líka í nokkru sem við köllum Miami, Flórída. Og sko Geiri lét sig ekki vanta á Grindr öll jólin og það voru heimtur,“ sagði Ólöf um vin sinn og gott gengi hans á stefnumótaforritinu Grindr. Ólöf segist hafa gist á golfhótelinu Trump National Doral í Miami ásamt Magnúsi Ragnarssyni. Parið hefur verið að slá sér upp síðustu misseri og mætti Ólöf með hann upp á arminn í brúðkaup Elsu Sólar Gunnarsdóttur og Hauks Karlssonar í Dómkirkjunni 25. október síðastliðinn. Mikið um sjötuga herra með 25 ára dömum „Það er ekki í lagi en það voru bara svo ógeðslega flottir tennisvellir þarna þannig við ákváðum að gista þar,“ sagði Ólöf um Trump National Dorsal sem auk glæsilegra tennisvalla býður gestum upp á glæsilegan golfvöll „Við komum þarna og ég var með Magnúsi mínum og það var minnstur aldursmunur á okkur, það eru 25 ár á milli okkar sko. Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum, þarna var mikið um sjötíu ára herra með 25 ára dömum. Það var allt undir í lýtalækningum og allt þetta,“ sagði Ólöf. Ólöf líkti dvölinni við félagslega rannsókn á stöðunum tveimur, Miami í Flórída og Cabarete í Dóminíska lýðveldinu. „Dóminíska lýðveldið þar sem við vorum, í Cabarete, þetta er höfuðborg vændis í karabíska hafinu. Trump National í Miami: ekki minna að gera hjá Geira á Grindr. Jafnvel aukin virkni á Trump National,“ sagði hún svo en var augljóslega að gantast. Ólöf var þó ekki bara með Magnúsi Ragnarssyni og Ásgeiri Guðmundssyni í fríinu heldur líka Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem hefur verið í leyfi frá Alþingi síðan síðasta sumar til að stunda meistarnám við Columbia í New York. „Ég sá að þú sýndir öllum sem sjá vildu að bardagakindin sáluga lifir enn,“ sagði Kristín um Áslaugu. „Heyrðu það er nú ein af uppgötvunum ársins 2025, hún lifir og það er ekkert að henni,“ svaraði Ólöf þá og vísaði þar hugsanlega til þess hve virk Áslaug er á samfélagsmiðlum og dugleg að minna á sig. Hún ræddi í kjölfarið aðeins um samveruna með Áslaugu þar ytra.
Ástin og lífið Dóminíska lýðveldið Bandaríkin Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Sjá meira