Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. janúar 2026 06:59 Kínverjar eru síður en svo ánægðir með samskipti Evrópuríkjanna við Taívan. Getty/Johannes Neudecker Kínversk stjórnvöld hafa beitt Evrópuríki þrýstingi og krafist þess að þau hleypi ekki embættismönnum frá Taívan inn í lönd sín. Þetta hefur Guardian eftir fjölda heimildarmanna, sem segja Kína hafa varað ríkin við því að „traðka ekki á rauðum línum Kína“.
Kínverjar eru sagðir hafa beitt ýmsum leiðum til að koma viðvörunum sínum á framfæri; annað hvort í skriflegum skilaboðum eða munnlega og ýmist í gegnum sendiráð ríkja í Pekíng eða eigin sendiráð í Evrópu. Samskiptin áttu sér stað í nóvember og desember og virðast hafa verið viðbrögð við ferðum taívanskra embættismanna til Evrópu, meðal annars varaforseta landsins og utanríkisráðherra. Kínverjar ku hafa vísað til laga og reglna Evrópusambandsins og Schengen, meðal annars ákvæðis sem segir að það megi ekki hleypa einstaklingum inn sem eru taldir ógna alþjóðlegum samskiptum aðildarríkis. Túlkun Kínaverja mun vera sú að með því að hleypa embættismönnum frá Taívan inn í Evrópuríki, sé viðkomandi ríki að ógna samskiptum sínum við Kína. Samkvæmt heimildum Guardian eru Evrópuríkin hvött til þess að hleypa ekki taívönskum embættismönnum inn fyrir landamæri sín, til að varðveita samband sitt við Kína. Vísað er til heimsókna Taívana til Belgíu, Póllands, Þýskalands, Danmerkur og Írlands, svo eitthvað sé nefnt. Stjórnvöld í Noregi og Finnlandi hafa staðfest að þau séu meðal þeirra ríkja sem fengu umrædd skilaboð frá Kínverjum.
Kína Taívan Evrópusambandið Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira