Sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá 2011 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2026 12:32 Diego Simeone tók við liði Atletico de Madrid þegar hann var nýorðinn fertugur en núna er hann að verða 56 ára í apríl. Getty/Angel Martinez Barcelona, Real Madrid og Atletico Madrid eru þrjú stærstu félögin á Spáni en eitt þeirra sker sig út þegar kemur að þjálfaramálum.
Real Madrid var enn á ný að skipta um þjálfara í vikunni þegar Álvaro Arbeloa tók við liðinu af Xabi Alonso en sá síðarnefndi hafði verið aðeins með liðið í hálft ár. Arbeloa byrjaði síðan á því að tapa í bikarnum í fyrsta leik. Barcelona hefur líka farið í gegnum marga þjálfara síðustu ár síðan að Pep Guardiola hætti óvænt með liðið á toppnum. Hjá Atletico Madrid er allt annað dæmi í gangi. Þar hefur verið sami þjálfari í fimmtán ár og hann heitir Diego Simeone. Simeone var ráðinn í desember 2011, nánar tilgetið á Þorláksmessu. Hann tók við liðinu af Gregorio Manzano sem var rekinn daginn áður eftir bikartap á móti C-deildarliði. Simeone endaði á því að vinna Evrópudeildina á sínu fyrsta tímabili en liðið hefur síðan tvisvar orðið spænskur meistari, einu sinni bikarmeistari, vann Evrópudeildina í annað skiptið 2018 og hefur tvisvar komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Simeone hefur nú stýrt liðinu í 767 leikjum og unnið 455 þeirra. Hann er með 59 prósent sigurhlutfall. Sky Sports setti saman sláandi mynd af þjálfurum þriggja stærstu spænsku félaganna frá árinu 2011 sem má sjá hér fyrir neðan. Á meðan Real Madrid hefur farið í gegnum átta þjálfara og Barcelona í gegnum tíu þá hefur aðeins einn maður stýrt liði Atletico Madrid. View this post on Instagram A post shared by Sky Sport (Italia) (@skysport)
Spænski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Sjá meira