Tímabær endurskoðun jafnlaunavottunar Hákon Skúlason skrifar 16. janúar 2026 15:30 Ég styð jafnrétti á vinnumarkaði og þá grundvallarhugmynd að fólk fái jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni. Um það ætti enginn ágreiningur að vera. Einmitt þess vegna vil ég deila minni reynslu af jafnlaunavottun og um leið fagna þeim breytingum sem nú hafa verið lagðar fram á Alþingi. Ég hóf vinnu við jafnlaunavottun hjá mínu fyrirtæki í ágústmánuði 2022 en skilafrestur átti að vera um þau áramót. Það sem í fyrstu virtist vera afmarkað stjórnsýsluverkefni þróaðist fljótt í margra mánaða ferli. Umsóknum var hafnað, gögn send til baka, breytingar gerðar, nýjar umsóknir sendar inn og ítrekað sótt um lengri fresti. Þetta tók ekki daga eða vikur, heldur mánuði. Að lokum var umsóknin samþykkt í apríl 2023 eftir tæplega átta mánaða vinnu og margar beiðnir um frest á skilum. Hjá fyrirtækinu sem ég stýri eru allir starfsmenn í hlutastarfi og fólk vinnur mismikið milli mánaða, vinnutími sveiflast og starfsmannavelta er há. Þess vegna var var erfitt að skrá inn í fyrirfram uppsett form sem miðaði við föst stöðugildi eins og um hefðbundinn vinnustað væri að ræða. Þetta gerði ferlið flóknara, tímafrekara og íþyngjandi. Skyndilega þurfti ég að verða sérfræðingur í flóknu regluverki sem hafði ekkert með kjarnastarfsemi fyrirtækisins að gera. Á sama tíma var mér ítrekað bent á að það væri „mun einfaldara“ að kaupa ráðgjafaþjónustu. Kostnaðurinn sem nefndur var hljóðaði upp á hundruð þúsunda króna, jafnvel milljónir. Með þessari lagaskyldu hafði myndast heilt vistkerfi ráðgjafa, hugbúnaðarfyrirtækja og sérhæfðra deilda sem lifðu á því að þjónusta jafnlaunavottunina. Ég valdi að fara ekki þá leið og ákvað að vinna þetta allt innanhúss. En ferlið var óeðlilega tímafrekt og langt frá því að vera í takt við þann fjölbreytileika sem raunverulega einkennir íslenskt atvinnulíf. Þess vegna fagna ég sérstaklega þeirri tillögu sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur nú lagt fram um að leggja jafnlaunavottun af í núverandi mynd og innleiða einfaldara fyrirkomulag í staðinn „reglubundna skýrslugjöf um kynbundinn launamun“. Sú leið snýst ekki um að veikja jafnrétti, heldur um að ná sömu markmiðum með skynsamlegri og hagkvæmari hætti. Það sem gerir þetta enn ánægjulegra er að þessi breyting varð í kjölfar þess ríkisstjórnin kallaði eftir hugmyndum frá almenningi um hvernig mætti hagræða í rekstri ríkisins og draga úr óþarfa regluverki. Ég sendi þá inn tillögu byggða á þessari reynslu minni – og nú sé ég hana verða að veruleika. Jafnrétti á vinnumarkaði á ekki að gera þá kröfu að framkvæmdastjórar breytist í sérfræðinga í flóknu regluverki eða að fyrirtæki neyðist til að kaupa dýra ráðgjafa til að standast kerfiskröfur. Markmiðið er rétt, en leiðin þarf að vera framkvæmanleg, sanngjörn og í takt við raunveruleikann. Endurskoðun jafnlaunavottunar er því ekki skref aftur á bak heldur tímabært skref í rétta átt. Höfundur er framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í Viðreisn Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar