„Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Jakob Bjarnar skrifar 19. janúar 2026 11:21 Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi var 2. á lista VG á eftir Líf Magneudóttur á kjörtímabilinu. Hann segir einhug um að Sanna Magdalenudóttir leiði sameiginlegt framboð VG og nýs framboðs, Vors til vinstri, í komandi kosningum. vísir/vilhelm Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, segir fulla einurð þar á bæ með að fara í sameiginlegt framboð með Vori til vinstri. Það hafi komið fram á félagsfundi sem haldinn var í gær. „
Þetta er bara það sem verið er að vinna að. Það er alveg rétt sem oddvitinn okkar bendir á að það þarf að klára að setja slaufu á pakkann. En framboðslistinn er samþykktur á fundi,“ segir Stefán. Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna (VG) í Reykjavík, sagði í frétt í gær það hafa komið sér í opna skjöldu þegar hún heyrði frá fjölmiðlum að Sanna Magdalena Mörtudóttir myndi leiða sameiginlegt framboð VG og Vors til vinstri. Það hafi ekki verið það sem samþykkt var á fundi félags VG í Reykjavík í dag. Klofnir Sósíalistar Þannig hefur nokkur flumbrugangur einkennt framboðsmálin enda stutt til kosninga. En Stefán bendir á að þau hafi unnið vel með Sönnu og þeim sem hafa komið að málum á vegum Sósíalistaflokksins í borginni á kjörtímabilinu. Og hann birtir mynd af þeim hópi og fer yfir málin í Facebook-færslu í morgun. Það sem óneitanlega gruggar vatnið er staðan innan Sósíalistaflokksins í dag, eftir að þar varð klofningur. Sanna býður ekki fram undir þeim merkjum í dag. „Það er ekkert leyndarmál að sá hópur sem ræður í dag yfir kennitölu Sósíalistaflokksins og hefur væntanlega aðgang að ríkisframlögunum og öðru slíku, fulltrúar frá honum mættu á einhvern undirbúningsfund og svo var það bara búið,“ útskýrir Stefán. Hann segir ekki hafa verið áhuga af þeirra hálfu að koma í samstarf. „Það eru mikil sárindi innan þess hóps. Þeir eru með önnur markmið í pólitík. Ég á frekar von á því að Karl Héðinn, Þorvaldur Þorvaldsson og sá hópur bjóði fram undir sínum merkjum, án þess að ég viti neitt um það.“ Spurður hvort flumbrugangur einkenni ekki kynningu sameiginlegs framboðs segir Stefán: „Þó að við séum skarpir að samanlögðu held ég að þurfi klárari menn en okkur til að skilja væringarnar innan Sósíalistaflokksins á síðasta ári. Þar var þetta komið út í ótrúlegt skítkast, kærumál til lögreglu og ég veit ekki hvað og hvað. Ég reyni ekkert að skilja það allt saman. Ef við hefðum ætlað að leiða þá hópa saman hefðum við getað komið á friði á Grænlandi og Gaza í leiðinni.“ Kjörstjórn auglýsir eftir framboðum Stefán ítrekar að þau í borgarstjórnarflokki VG hafi hins vegar átt í mjög góðu samstarfi við Sönnu og aðra þá sem hafa komið þar inn á þessu kjörtímabili og ekki hafi borið langt á milli í þessum samningaviðræðum. „Þær viðræður voru á höndum stjórnar Vinstri grænna í Reykjavík og kannski eðlilegt að við kjörnir fulltrúar værum ekki með puttana í þessu.“ Verður þú á lista? „Það hefur ekkert verið ákveðið og við höfum gantast með það að nú sé tískan sú að það séu haldnir blaðamannafundir eða drottningarviðtöl þegar framboð eru kynnt. Ég get ekki verið að splæsa þeim upplýsingum í samtali við blaðamann Vísis.“ Heyrðu, Vísir er helsti fréttamiðill landsins. „Nei, nei, ég er að grínast. Við skipuðum kjörstjórn og þar er valinn maður í hverju rúmi, þar eru fyrrum þingmenn; Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og fleiri, og þau eiga eftir að lýsa eftir framboðum. Það verður forval hjá okkur sem verður 20. til 22. febrúar og þar verða valdir þrír efstu fulltrúar VG. Þetta verður að gerast í réttri röð en tíðinda er að vænta mjög fljótlega.“ Stefán segist ekki búast við öðru en að það sé eftirspurn eftir framboði sem staðsetur sig á vinstri væng stjórnmálanna þegar fyrir liggi að önnur framboð eru að hnikast til hægri.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Vor til vinstri Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira