Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 21. janúar 2026 08:31 Þorsteinn Víglundsson hefur sagt skilið við sinn gamla flokk Viðreisn, og vill verða formaður Samtaka iðnaðarins. aðsend Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og varaformaður Viðreisnar, og forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. sækist eftir embætti formanns Samtaka iðnaðarins. Þá segist hann hafa sagt skilið við Viðreisn og lýsir óánægju með ríkisstjórnarsamstarf flokksins með Flokki fólksins.
Í færslu sem Þorsteinn birtir á samfélagsmiðlum í morgun greinir hann frá framboði sínu til formanns Samtaka iðnaðarins í aðdraganda Iðnþings sem fer fram þann 5. mars næstkomandi. Í færslunni hnýtir hann meðal annars í gullhúðun við innleiðingu evrópsks regluverks á Íslandi, en líkt og kunnugt er hefur Viðreisn verið sá flokkur sem talað hefur hvað ötulast fyrir því að Ísland gangi í Evrópusambandið. „Við eyðum árum og áratugum í undirbúning raforkuöflunar og opinberra framkvæmda sem þvælast í tímafrekum skipulagsferlum og endalausum kærumálum. Við mætum íþyngjandi gullhúðun evrópsks regluverks og ófyrirsjáanleika og geðþótta eftirlitsstofnana í framfylgni þess. Þetta þarf ekki að vera svona flókið.“ skrifar Þorsteinn meðal annars í færslunni, sem sjá má í heild sinni hér að neðan. Í samtali við Morgunblaðið í dag segist Þorsteinn hafa sagt skilið við Viðreisn á síðasta ári. „Ég hætti í pólitík árið 2020 og tók þá ákvörðun á síðasta ári að segja skilið við Viðreisn. Ég var ósáttur við ríkisstjórnarsamstarfið við Flokk fólksins sem er popúlískur lýðskrumsflokkur og besta dæmið um óábyrgt stjórnmálaafl sem mun reynast ríkiskassanum mjög dýrt,“ segir Þorsteinn meðal annars í samtali við Morgunblaðið. Hann segir jafnframt í færslu sinni að krísur, líkt og nú séu uppi í alþjóðasamfélaginu þar sem óvissa hefur aukist og tollum fjölgað svo fátt eitt sé nefnt, gefi ærið tilefni til breytinga. Í tilkynningu um framboð Þorsteins segir meðal annars að hann hafi verið meðal stofnenda Samáls, Samtaka íslenskra álframleiðenda og framkvæmdastjóri 2010-2013, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins 2013-2016, alþingismaður 2016-2020 og félagsmálaráðherra árið 2017. Frá 2020 hefur Þorsteinn verið forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, sem rekur BM Vallá og Björgun-Sement. Þorsteinn sat á þingi fyrir Viðreisn árin 2016 til 2020 og gegndi embætti félags- og jafnréttismálaráðherra fram að óvæntum alþingiskosningum árið 2017, þegar Björt framtíð sleit stjórnarsamstarfi við Viðreisn og Sjálfstæðisflokkinn. Þorsteinn var endurkjörinn á Alþingi í kosningunum 2017 en sat ekki allt kjörtímabilið þar sem hann hætti þingmennsku og hóf störf sem forstjóri Hornsteins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Viðreisn Stóriðja Byggingariðnaður Atvinnurekendur Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Dregur til tíðinda í borginni Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Sjá meira