Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2026 10:01 Beðið er með mikilli eftirvæntingu eftir íslensku útgáfunni af Taskmaster. Íslenska útgáfan af Taskmaster hefur göngu sína á Sýn á næstu vikum og mun eflaust slá í gegn hér á landi líkt og það hefur gert víða um heim. Upprunalegu þættirnir, sem eru frá Bretlandi, komu til sögunnar fyrir rúmlega áratug síðan og seríurnar orðnar 20 talsins.
Þrautakóngurinn er með vinsælustu sjónvarpsþáttum þar í landi og þó víða sé leitað. Enda um frumlegt, hnittið og á köflum æsispennandi sjónvarpsefni að ræða þar sem keppendur keppast um að leysa hinar ýmsu þrautir. Dyggir aðdáendur Taskmaster hér á landi kannast vel við Greg Davies, sem stýrir þáttunum, og Alex Horne, sem er heilinn á bak við þrautirnar, sem hljóta nú að vera meira en 100 talsins. Í þeirra stað í íslensku útgáfunni koma þeir Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð. Í gærkvöldi fengu áhorfendur Sýnar að skyggnast á bak við tjöldin hjá þessari íslensku framleiðslu og sjá hvernig stemningin var á settinu. Kannski hvergi betra að byrja en á leikstjóranum sjálfum. Gaukur Úlfarsson er leikstjóri Taskmaster á Íslandi og hitti Tómas Arnar hann inni í hjólhýsi. „Hér gerast alveg ótrúlegir hlutir. Milli daga, eftir tökur, þá sofum við Jói hérna. Breiðum þetta út hérna og svo bara vöknum við. Það tekur ekkert að fara heim, þetta eru langir dagar. Þannig að við leggjum okkur hér eftir daginn. Jói trítlar hérna inn og hellir upp á kaffi og svona. Nei nei, hluti af þrautunum fer fram hérna inni,“ segir Gaukur léttur. Ótrúleg atburðarás Kjarninn í þáttunum er að keppendur ganga inn í rými og vita ekkert hvað er í vændum áður en þau opna umslag með þraut. Og þá tekur vanalega við ótrúleg atburðarás. „Þetta er alveg ofboðslega skemmtilegt. Ég held að aðalpunkturinn í því sé að feta stigið á milli þess að, við vitum að það eru ofboðslega margir Taskmaster íslenskir aðdáendur en örugglega langfæstir hafa séð Taskmaster. Við megum ekki styggja þá sem elska Taskmaster og við þurfum að feta þetta stig, heiðra upphaflega hvernig þetta á að vera og hvernig þetta á að líta út og hvernig þetta á að fara fram allt. Og síðan að vera með eitthvað sem við erum með, svona séríslenskt, sem við höldum að geti höfðað betur til okkar fólks,“ segir Gaukur. Talandi um séríslenskt, það er kannski vel við hæfi að kynna keppendur til leiks, en það eru þau Edda Björgvins, Sveppi, Krull, Siggi Þór, Vilhelm Neto og Snjólaug Lúðvíksdóttir. Ég get fullyrt það að mörg af þeim sem við erum búin með eru bara að kveðja okkur með bara tárin í augunum. Það er svo merkilegt að það er sama sagan í Bretlandi. Þeir segja það líka að þetta sé svo gaman. Við þekkjum marga af þessum grínistum sem hafa tekið þátt úti. Þeir segja allir það sama að þetta sé alveg frábært. Maður fer og er í nokkra daga í upptökum og maður er bara að leika sér og hefur ógeðslega gaman. Svo verður maður alveg rosalega frægur.“ Alex Horne, þrautahöfundur Taskmaster, kíkti í heimsókn á settið hér á landi. „Hann fór svolítið með okkur yfir hvernig þetta ætti að vera. Svo í kjölfarið þá sendir hann okkur sérþrautir. Sérþrautir sem að hafa hvergi verið sýndar, ekki í bresku og ekki neins staðar annars staðar. Ég var bara svona að athuga hvernig við tækjum í það og ég tók bara strax sjö af þeim þrautum og setti þær inn í þennan pakka. Þannig að það verða sjö alveg nýjar, heimsfrumsýningar á þrautum,“ segir Gaukur og heldur áfram. Sullrýmið „Svo bað hann um að fá að sjá hvernig gekk og var hann bara svo svakalega glaður að sjá hvernig þetta var flott og kúl þannig að þetta verður alveg sérstaklega skemmtilegt.“ Jóhann Alfreð er maðurinn sem kemur í hans stað í íslensku útgáfunni. „Þau ykkar sem hafa séð þáttinn, þetta er náttúrulega svona tilraunastofa. Við köllum þetta sullrými. Hér má allt slettast hérna á þannig að þetta er eitt af þessum herbergjum þar sem þetta allt saman gerist,“ segir Jóhann. „Ég er svona fulltrúi þáttarins á vettvangi þannig að ég þarf að fylgjast með öllu, að allt fari rétt fram og ég legg þrautirnar fyrir keppendurna. Svo er ég bara hérna, með hús, klukku og flautu og svona aðstoðarmaður dómarans,“ segir Jói en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Taskmaster – Ísland Ísland í dag Sýn Mest lesið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Fleiri fréttir Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Sjá meira