Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. janúar 2026 11:30 Strákarnir úr Skírisskógi lentu í vandræðum í gær og Elliot Anderson fékk rautt spjald. by Diogo Cardoso/Getty Images Nottingham Forest upplifði algjöra martröð gegn Braga í Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Forest-menn voru betri aðilinn en tókst ekki að brjóta ísinn í fyrri hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks fengu þeir tækifæri til þess, þegar Morgan Gibbs-White steig á vítapunktinn en spyrnan frá honum var varin. Braga brunaði þá í sókn, sem endaði með óheppilegu sjálfsmarki hjá Ryan Yates, aðeins 55 sekúndum eftir vítaklúðrið. Þessi óheppilegu röð atvika má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Martaðarmínúta Nottingham Forest Staðan var þá skyndilega orðin 1-0 en ekki 0-1 á aðeins 55 sekúndum. 1-0 fyrir Braga urðu svo lokatölur leiksins, þrátt fyrir fimm breytingar á liði Nottingham Forest og enn fleiri tilraunir á markið. Braga tókst þannig að vinna leikinn án þess að skjóta á markið og er aðeins annað liðið í sögu Evrópudeildarinnar sem afrekar það. Braga-menn skutu reyndar í stöngina í stöðunni 1-0, en það telur ekki sem skot á markið á tölfræðiblaðinu. Til að fullkomna martröðina nældi Elliot Anderson sér í rautt spjald í uppbótartíma fyrir rifrildi við dómara. Anderson mun því missa af næsta leik Nottingham Forest í Evrópudeildinni gegn Ferencvaros. Forest er í 16. sæti deildarinnar og er öruggt með umspilssæti, en á lítinn séns á að komast beint áfram í sextán liða úrslit.
Evrópudeild UEFA Nottingham Forest Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Sjá meira