Inga Sæland Árný Björg Blandon skrifar 23. janúar 2026 11:30 Ég get ekki annað en dáðst að henni. Það eru ekki allir sem standa keikir með beint bak og bros á vör sem hafa sætt þeim ásökunum sem hafa dunið á henni. Sumt fólk elskar hana en aðrir vilja grafa henni gröf og losna við hana þar ofan í.Hún er kona sem lætur ekki deigan síga en heldur áfram með þau mál sem brenna henni á hjarta. Ég finn greinilegan áhuga hennar á að sjá uppbyggingu í landinu okkar, bæði á fólki og innviðum. Hún lætur svo sannarlega til sín taka þar sem hún getur veitt lið.Hún er ekki fullkomin fremur en við, eða aðrir þingmenn. Það gera allir mistök. Okkur finnst áreiðanlega öllum vænt um þegar við fáum annan, þriðja og fleiri sjensa. Það sem við viljum að aðrir menn geri okkur, skulum við gera þeim. Viltu láta jarða þig eða lyfta þér upp?Það sem ég tek vel eftir hjá Ingu Sæland er að hún lætur engan troða sér um tær. Hún fer áfram með sínar hugsjónir, að bæta þjóðfélagið okkar eins og hún mögulega getur. Hún lætur ekki afbrýði annarra þingmanna stoppa sig. Virðist alltaf fá byr undir báða vængi hvað sem á dynur.Með þeim dómi sem við dæmum, megum við eiga von á að verða dæmd. Sumir kalla þetta karma.Ég segi, áfram Inga Sæland, láttu engann stöðva þig og þínar góðu hugsjónir og verk sem eru orðin mörg á þessu fyrsta ári ríkistjórnarinnar þar sem þú vermir nú einn ráðherrastólinn. Þú ert góð fyrirmynd.Opinbert niðurrifið sem hún hefur orðið fyrir, sýnir mér styrkleika hennar, þolinmæði og þrautseigju, en innri mann þeirra sem kasta í hana steinum.Áfram Inga Sæland. Tek fram að ég kaus ekki flokkinn hennar en styð hana af öllu hjarta. Höfundur vinnur við þýðingar og ritvinnslu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árný Björg Blandon Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Ég get ekki annað en dáðst að henni. Það eru ekki allir sem standa keikir með beint bak og bros á vör sem hafa sætt þeim ásökunum sem hafa dunið á henni. Sumt fólk elskar hana en aðrir vilja grafa henni gröf og losna við hana þar ofan í.Hún er kona sem lætur ekki deigan síga en heldur áfram með þau mál sem brenna henni á hjarta. Ég finn greinilegan áhuga hennar á að sjá uppbyggingu í landinu okkar, bæði á fólki og innviðum. Hún lætur svo sannarlega til sín taka þar sem hún getur veitt lið.Hún er ekki fullkomin fremur en við, eða aðrir þingmenn. Það gera allir mistök. Okkur finnst áreiðanlega öllum vænt um þegar við fáum annan, þriðja og fleiri sjensa. Það sem við viljum að aðrir menn geri okkur, skulum við gera þeim. Viltu láta jarða þig eða lyfta þér upp?Það sem ég tek vel eftir hjá Ingu Sæland er að hún lætur engan troða sér um tær. Hún fer áfram með sínar hugsjónir, að bæta þjóðfélagið okkar eins og hún mögulega getur. Hún lætur ekki afbrýði annarra þingmanna stoppa sig. Virðist alltaf fá byr undir báða vængi hvað sem á dynur.Með þeim dómi sem við dæmum, megum við eiga von á að verða dæmd. Sumir kalla þetta karma.Ég segi, áfram Inga Sæland, láttu engann stöðva þig og þínar góðu hugsjónir og verk sem eru orðin mörg á þessu fyrsta ári ríkistjórnarinnar þar sem þú vermir nú einn ráðherrastólinn. Þú ert góð fyrirmynd.Opinbert niðurrifið sem hún hefur orðið fyrir, sýnir mér styrkleika hennar, þolinmæði og þrautseigju, en innri mann þeirra sem kasta í hana steinum.Áfram Inga Sæland. Tek fram að ég kaus ekki flokkinn hennar en styð hana af öllu hjarta. Höfundur vinnur við þýðingar og ritvinnslu.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar