Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2026 23:15 Cristian Zavala klúðraði vítinu og meiddi sig við það. @espnfc Sumir læra ekki af mistökum annarra og vaða beint í sömu gildru. Aðeins nokkrum dögum eftir eitt frægasta Panenka-vítaspyrnuklúður í langan tíma ákvað annar leikmaður að reyna hið sama.
Þjálfari Colo Colo hefur samt varið leikmann sinn, Cristian Zavala, eftir að hann klúðraði „Panenka“-vítaspyrnu á undarlegan hátt og haltraði svo aftur að hliðarlínunni, augljóslega meiddur. Cristian Zavala, joueur de Colo-Colo au Chili, a 𝗧𝗘𝗟𝗟𝗘𝗠𝗘𝗡𝗧 𝗥𝗔𝗧𝗘́ sa panenka lors d'une séance de tirs au but cette nuit qu'il a 𝗦𝗜𝗠𝗨𝗟𝗘́ 𝗨𝗡𝗘 𝗕𝗟𝗘𝗦𝗦𝗨𝗥𝗘 ! 😅😅Aie aie aie... pic.twitter.com/PCnjDPYi50— Footballogue (@Footballogue) January 22, 2026 Sem betur fer var ekki mikið undir í þessum leik því um var að ræða vináttuleik gegn Peñarol frá Úrúgvæ, þar sem síleska liðið Colo Colo bar sigur úr býtum 4-3 í vítaspyrnukeppni. Þessi eina vítaspyrna fór samt á flug á netinu vegna þess hve undarleg hún var. Zavala, dögum eftir alræmda misheppnaða Panenka-spyrnu Brahim Díaz í úrslitaleik Afríkukeppninnar, vippaði vítaspyrnu sinni beint á markvörðinn – líkt og Marokkómaðurinn – áður en hann, á nokkuð spaugilegan hátt, fór niður meiddur, sem margir á samfélagsmiðlum töldu vera uppgerð. Þjálfari Colo Colo, Fernando Ortiz, fullyrti þó að Zavala hefði í raun verið meiddur fyrir. „Zavala var í vandræðum,“ sagði hann. „Ég skil löngunina til að taka víti, það er bara hluti af þeirri brjálæði og kvíða sem Cristián býr yfir,“ sagði Ortiz. „En ég held að tilfinningarnar hafi fengið hann til að taka spyrnuna. Nú er verið að skoða hann, vonandi er þetta ekkert alvarlegt,“ sagði Ortiz. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc)
Fótbolti Mest lesið England - Ísland | Mæta Evrópumeisturunum eftir skellinn gegn heimsmeisturunum Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport Mansfield - Arsenal | Þreyttar skyttur sækja C-deildarlið heim í bikarnum Enski boltinn Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Handbolti Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings Fótbolti Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings England - Ísland | Mæta Evrópumeisturunum eftir skellinn gegn heimsmeisturunum Mansfield - Arsenal | Þreyttar skyttur sækja C-deildarlið heim í bikarnum Engar breytingar gegn Englendingum Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Íhuga brottrekstur eftir minna en mánuð „Ég hef ekkert að sanna“ Valverde bjargaði Real í blálokin Leiðin bein þó það vanti Kane Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Robertson sá um að hefna Jóhann heim til Íslands heilu og höldnu Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Evrópumeistararnir þurfi að vera upp á sitt besta til að vinna Ísland Segir dómgæslu skaða titilvonir Man City Man United gerði hærra tilboð í Bale Arsenal-menn létu bíða eftir sér í 30 mínútur og 51 sekúndu Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina „Konan mín gagnrýndi það sem ég sagði og mamma mín líka“ Var með krabbamein á HM „Láttu í þér heyra, Orri!“ Leita að treyju félagsins sem Madonna klæddist árið 1990 Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Messi eyddi kvöldinu með Trump Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Sjá meira