„Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 25. janúar 2026 14:16 Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu segir að það sé greinilega ekki nóg að halda skemmtilegasta partýið til að landa þriðja sætinu á lista Samfylkingarinnar. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði.
Hann gerði upp hina stuttu en snörpu baráttu á samfélagsmiðlum rétt í þessu. „Ég vaknaði í morgun eftir skemmtilegt kvöld, smá örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum,“ skrifar Guðmundur. Tvær mjög krefjandi vikur séu nú að baki. Þrátt fyrir að hann hafi ekki komist í sex efstu sætin – sem eru bindandi – þá finnist honum árangur sinn góður þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í heild sinni. „Það er greinilega ekki nóg að halda skemmtilegasta partýið til að vinna kosningu, en það var allavega vel mætt og ógleymanlegt.“ Hann þakkar stuðningsfólki sínu innilega og segist munu halda áfram að vinna með flokknum. Nú muni hann snúa sér aftur að því sem hann kunni best. „Vinna með fólki á vettvangi, baráttu láglaunafólks, velferðarmálum og fangelsum landsins.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfylkingin Tengdar fréttir Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Sjá meira
Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. 6. janúar 2026 14:47