Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. janúar 2026 20:02 Mynd Tóta frá Kerinu hefur vakið mikla athygli. Þórarinn Leifsson Leiðsögumaður varð vitni að fjölda ferðamanna gera sér ferð út á ísinn í Kerinu á Suðurlandi síðdegis í gær. Eigendur þess segjast taka málið alvarlega og að brugðist verði við, stranglega bannað sé að fara út á ísinn.
Þórarinn Leifsson leiðsögumaður, rithöfundur og myndlistarmaður með meiru birti mynd af ferðamönnunum á samfélagsmiðlum í gær. Níu ferðamenn á ísnum „og heil rúta í viðbót á leiðinni niður stigann.“ Hann segist hafa gert starfsmanni Kersins viðvart en sá hafi gert lítið í málinu og ekki litið upp úr símanum. Hann hafi bent honum á skilti þar sem standi að bannað sé að fara út á ísinn. „En er þetta kannski bara taugaveiklun í mér? Hefur ísinn kannski aldrei gefið eftir og fólk horfið ofan í tíu metra djúpt vatnið? Kannski er okkur einfaldlega drullu sama,“ skrifar Þórarinn á Facebook. „Ég hef ekki hundsvit á ís, það er aðalatriðið, ég var ekki beint að klaga en ég ákvað að birta þetta á Facebook því ég vinn náttúrulega við það að halda túristum á lífi og þetta er bara liður í því,“ segir Þórarinn í samtali við Vísi. Þórarinn hefur gefið út fjölda bóka undanfarin ár, síðast glæpasögu með því viðeigandi nafni Út að drepa túrista árið 2021. „Það er auðvitað vel kaldhæðnislegt að gaurinn sem skrifi þá bók hafi verið korter í að horfa á túrista deyja fyrir framan hann,“ segir Þórarinn hlæjandi og tekur fram að um grín sé að ræða. Þórarinn tekur fram að hann hafi ekki hundsvit á ís en hafi velt fyrir sér spurningum um öryggi ferðamanna. Ásgeir Baldurs segir málið tekið alvarlega. Taka málinu mjög alvarlega „Við fréttum af þessu máli í dag og okkur þykir viðbrögð þessa starfsmann mjög miður og ekki eins og við hefðum viljað hafa þau,“ segir Ásgeir Baldurs framkvæmdastjóri Arctic Adventures. Fyrirtækið keypti Kerið fyrir þremur árum síðan, í október 2023. Ári síðar keypti fyrirtækið annan vinsælan ferðamannastað á Suðurlandi, Fjaðrárgljúfur. „Við tökum þetta mjög alvarlega. Við ætlum að grípa til aðgerða til að auka merkingar þarna á staðnum og fjölga böndum þarna sem við nýtum til að takmarka aðgang að vatninu,“ segir Ásgeir. Hann segir jafnframt að farið verði yfir málin með starfsfólki. „Því miður er ekki alltaf hægt að koma í veg fyrir að fólk fari ekki eftir leiðbeiningum, en það á að vera alveg skýrt að þetta er bannað og við höfum líka beðið fólk um að henda ekki grjóti út á ísinn og alls ekki fara út á hann. Við erum sömuleiðis að íhuga að auka myndavélagæslu þarna svo að við getum séð það strax ef eitthvað svona gerist.“
Ferðaþjónusta Grímsnes- og Grafningshreppur Slysavarnir Tengdar fréttir Engin salernisaðstaða við Kerið þrátt fyrir hagnað og ellefu ára gjaldtöku Þrátt fyrir að fyrrverandi og núverandi eigendur Kersins hafi tekið gjald af ferðamönnum í ellefu ár er ekki boðið upp á neina þjónustu á svæðinu eins og salernisaðstöðu. Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures segir fyrirhugað að reisa þjónustumiðstöð á svæðinu á næstu árum. 21. ágúst 2024 13:16 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Engin salernisaðstaða við Kerið þrátt fyrir hagnað og ellefu ára gjaldtöku Þrátt fyrir að fyrrverandi og núverandi eigendur Kersins hafi tekið gjald af ferðamönnum í ellefu ár er ekki boðið upp á neina þjónustu á svæðinu eins og salernisaðstöðu. Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures segir fyrirhugað að reisa þjónustumiðstöð á svæðinu á næstu árum. 21. ágúst 2024 13:16