Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa 27. janúar 2026 13:31 Þorgerður Katrín var á leik Íslands og Svíþjóðar á sunnudag. Hún sat við hlið Willums Þórs Þórssonar, formanns ÍSÍ og fyrrverandi ráðherra, og Maríu Rutar Kristinsdóttur, þingmanns Viðreisnar og fyrrverandi aðstoðarmanns hennar. Vísir/Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ætlar að bruna af þingfundi Alþingis sem er á dagskrá í dag til að horfa á leik Íslands og Sviss á EM karla í handbolta.
Þingfundi Alþingis verður ekki frestað vegna leiksins en hann hefst klukkan 13:30 á óundirbúnum fyrirspurnum. Þorgerður verður til taks undir fyrsta lið fundarins en segist ætla að bruna af fundinum til að horfa á leikinn. Hún er mikill áhugamaður um handbolta, sér í lagi þar sem að Gísli Þorgeir Kristjánsson landsliðsmaður er sonur hennar. „Leikurinn er hálf þrjú, ég ætla að bruna beint í skjáinn. Neglurnar eru farnar en röddin er komin aðeins aftur. Það er gefinn hálftími í óundirbúnar en svo fer ég eins og hálf þjóðin að horfa á þennan leik,“ sagði Þorgerður að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun. „Mér finnst gott að heyra það að vinnustaðir, þar sem hægt er, hafa sýnt mikinn sveigjanleika og verið að koma upp skjáum og fleira. Þessir leikir í dag gegn Sviss annars vegar og Slóveníu á morgun, við þurfum einfaldlega að vinna þá og þá getum við farið að láta okkur dreyma um næstu hluti. En einn leikur í einu og áfram gakk og áfram Ísland.“ Stórkostlegur tilfinningarússíbani Þorgerður var viðstödd leik Íslands og Svíþjóðar á Íslandi. Hún segir stemninguna hafa verið stórkostlega. „Þessi leikur, ég hef verið á mörgum handboltaleikjum í gegnum tíðina, en þetta var tilfinningarússíbani. Mér fannst svo stórkostlegt að sjá þessa liðsheild sem var þarna.“ Um ógleymanlegan sigur hafi verið að ræða en hún stefnir á að halda sig á Íslandi um sinn. Hugurinn leiti þó út. „Ég er hérna heima núna og ætlaði ekki að fara á neinn leik í milliriðlunum en af því að ég var á leið heim frá Genf og millilenti í Köben þá var gráupplagt að fara á leik. Við sendum strauma yfir hafið, þeir finna það.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira