„Þrjár eða fjórar sekúndur sem eru krítískar á þessum tíma“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. janúar 2026 17:14 Gísli Þorgeir ræðst til atlögu. vísir / vilhelm Gísli Þorgeir Kristjánsson var gríðarlega svekktur með 38-38 jafntefli Íslands gegn Sviss. Hann hefði viljað sjá tímann stoppa fyrr í lokasókninni en segir það ekki skipta mestu máli, Ísland hefði átt að gera betur miklu fyrr. „
Við vorum með þetta í okkar höndum en nú er þetta ekki lengur í okkar höndum. Mjög leiðinlegt að þetta skyldi fara svona“ sagði Gísli eftir leik í viðtali við Val Pál Eiríksson. Gísli var spurður út í lokasóknina, þegar svissneskur varnarmaður braut á honum en dómararnir voru lengi að stöðva tímann. Ísland hafði því aðeins tvær sekúndur til að taka lokaskotið. „Þeir ná að lesa það sem við ætlum að gera. Síðan fannst mér þeir gleyma að stoppa tímann, það liðu þrjár eða fjórar sekúndur sem eru krítískar á þessum tíma, og svo fór þetta svona.“ Ísland fékk í heildina á sig 38 mörk, sem er sárt fyrir sóknarmann eins og Gísla að sjá. „Það er allt, allt of mikið auðvitað. Segir sig sjálft. Við erum sjálfum okkur verstir, í því að búa ekki til sömu geðveiki og við náðum að knýja fram á móti Svíþjóð. Það er gríðarlega sárt að horfa á bæði Króataleikinn og leikinn í dag, þar sem við spilum klukkan hálf fjögur, fyrsti leikur og ekki margir í höllinni. Ekki sama stemning og þá þurfum við að búa hana til sjálfir, en við erum ekki að ná því. Náðum því ekki í dag. Vorum alltof linir. Þeir náðu að spila nákvæmlega eins og þeir vildu. Svo vorum við að drífa okkur alltof mikið, því við vorum alltaf að elta, sem er mjög vont. Það er alveg hægt að horfa á síðustu sóknina en við eigum að gera betur miklu fyrr.“ Klippa: Gísli Þorgeir sá sekúndur líða í lokasókninni
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Sjá meira