Áfram hvasst með suðurströndinni Atli Ísleifsson skrifar 28. janúar 2026 07:12 Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en um eða undir frostmarki á Norður- og Austurlandi. Vísir/Anton Brink Austlægar áttir ráða ríkjum á landinu þessa dagana og verður áfram hvassviðri eða stormur með suðurströndinni, en hægari vindur annars staðar.
Þetta segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að útlit sé fyrir skúri eða él á austanverðu landinu, en víða bjart veður vestantil. Í höfuðborginni bætir í vindinn upp úr hádegi og verður einna hvassast við Esjuna. Hiti verður á bilinu núll til sex stig, en um eða undir frostmarki á Norður- og Austurlandi. Á morgun dregur loks úr vindinum á öllu landinu og bætir í úrkomuna um sunnan- og austanvert landið. Líkur eru á að einhverjir dropar nái inn á suðvesturhornið í fyrramálið. Hægur vindur og úrkomulítið á föstudaginn. Ekki er útlit fyrir snjókomu á láglendi að neinu ráði næstu vikuna. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Minnkandi austanátt, 5-13 m/s síðdegis, hvassast syðst. Skúrir eða slydduél, en bjart með köflum og þurrt að mestu norðan- og vestantil. Hiti 0 til 8 stig, mildast sunnanlands. Á föstudag: Austlæg átt 3-10 m/s, hvassast syðst. Dálítil él eða skúrir austantil, en styttir upp síðdegis. Annars að mestu þurrt. Hiti um frostmark, en víða vægt frost norðanlands. Á laugardag: Austlæg átt 5-13 m/s og skúrir eða slydduél, en þurrt norðantil. Hiti um eða undir frostmarki, en upp í 5 stig með suðurströndinni. Á sunnudag: Austan 8-13 m/s og slydda eða rigning, en úrkomulítið norðanlands. Hiti frá frostmarki fyrir norðan upp í 5 stig syðst. Á mánudag: Suðaustlæg átt og rigning, einkum sunnantil, en lengst af þurrt fyrir norðan. Hlýnar heldur. Á þriðjudag: Útlit fyrir stífa sunnan- og suðaustanátt og talsverða rigningu sunnanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Erlent Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Karlarnir leiða að ósk kvennanna Innlent Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Erlent Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Innlent Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Innlent Fleiri fréttir Áfram hvasst með suðurströndinni Slær áfram í storm á suðurströndinni Djúp lægð veldur stormi syðst á landinu Þurrt og bjart víða um landið Hvasst syðst á landinu Kólnandi veður og víða bjart Ákveðin austanátt á landinu öllu og víða snarpar hviður Víða rigning með köflum og bætir í vind í kvöld Róleg austanátt en hvessir á morgun Víða rigning og kólnar í veðri Minnkandi norðlæg átt en bætir í vind á morgun Þurrt og bjart suðvestantil en snjór og él víða Líkur á smá slyddu og snjókomu syðst Stíf norðvestlæg átt ásamt ofankomu Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Gular veðurviðvaranir framundan Útlit fyrir hríðarveður á austasta hluta landsins í kvöld Frost og hægur vindur Norðaustlæg átt og allvíða él Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Vara við eldingum á Suðausturlandi Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Áfram kalt á landinu Óvenjulega hlýr desember Áfram kalt og lægðir sækja að landinu Hægir vindar og snjókoma norðan- og austantil Þykknar upp og snjóar Allt að tuttugu stiga frost en bjart víða Rólegt veður en kalt næstu daga Sjá meira