Jói Fel málar með puttunum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 30. janúar 2026 21:05 Jói Fel listamaður, bakari og matreiðslumaður, sem heitir fullu nafni Jóhannes Felixson og er með málverkasýningu þessa dagana á veggjum Sundhallar Selfoss. Magnús Hlynur Hreiðarsson Málverk eftir Jói Fel eins og hann er alltaf kallaður hafa vakið mikla athygli á veggjum Sundhallar Selfoss því þar eru til sýnis fjölmörg verk hans, til dæmis af þríeykinu í Covid og nokkrum heimsfrægum knattspyrnustjörnum. Margar af myndunum málar hann eingöngu með puttunum.
Sundhöll Selfoss er að verða vinsæll sýningarstaða fyrir listamenn að sýna verk sín en nú er það Jói Fel, sem er með nokkur verka sinna á veggjunum á ganginum þar sem gengið er í búningsklefana. Fjölmargir hafa mætt til að skoða sýninguna, sem opnaði 19. janúar og stendur til 19. febrúar. „Svo er þetta eingöngu málað með puttunum, það kemur enginn pensill eða penni eða neitt nálægt þessu. Þannig að ég klessi litnum á og svo nudda ég með puttanum og dreg úr,” segir Jói þegar hann sýndi puttamyndirnar sínar. Svo eru hefðbundnar myndir á sýningunni, sem hann málar með pensli eða penslum eins og af þríeykinu, þeim Ölmu, Víði og Þórólfi. Svo er Jói líka búinn að mála þessar knattspyrnuhetjur. Þekktar knattspyrnuhetjur, sem Jói hefur málað.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Og það er svolítið gaman að vera hérna í Sundhöllinni á Selfossi en ég segi World Class af því að ég mæti hérna á hverjum degi í World Class og það er svo gaman að hafa svona mikið af fólki, sem er að labba hérna ganginn, þannig að þetta er ekkert venjuleg málverkasýning, hérna koma þúsund manns á dag og skoða myndirnar mínar,” segir Jói kampakátur. Þannig að þú ert ekki bara að elda og baka, þú málar líka? „Já, já þetta er áhugamálið og ég geri þetta svona á kvöldin og helgar þegar ég er í smá fríi”. Sýningin er opin á opnunartíma Sundhallar Selfoss og hefur notið mikilla vinsælda til þessa.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og Jói er að sjálfsögðu stoltur af myndunum sínum. „Jú, ég er mjög stoltur af þessu og ég vona bara að hinir, sem koma á sýninguna séu stoltir og ánægðir með þetta,” segir Jói. Og að lokum hnyklaði Jói aðeins vöðvana fyrir okkur enda engin skortur á þeim á líkama hans. „Ég verð sextugur á næsta ári, ég er búinn að segja það, ég ætla að vera flottasti sextugasti karlmaðurinn á Íslandi, það er bara svoleiðis,” sagði Jói hlæjandi. Jói, sem segist ætla að verða flottasti sextugasti karlmaðurinn á næsta ári þegar hann fagnar 60 ára afmæli sínu.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Menning Myndlist Sýningar á Íslandi Sundlaugar og baðlón Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Fleiri fréttir Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Sjá meira