Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Árni Sæberg og Bjarki Sigurðsson skrifa 29. janúar 2026 16:44 Mikið hefur verið flutt inn af Teslum undanfarin ár. Rauða Teslan fyrir miðju er af gerðinni Y. Vísir/Vilhelm Af þeim 711 bifreiðum af gerðinni Tesla Y sem farið var með í aðalskoðun í fyrra stóðust 206 ekki skoðun og fara þurfti með þær í endurskoðun. Það gerir 29 prósent bifreiðanna.
Talsvert hefur verið fjallað um bifreiðar af gerðinni Tesla Y eftir að greint var frá því að samkvæmt gögnum Félags danskra bifreiðaeigenda (FDM) fái nær helmingur fjögurra ára gamalla Tesla Y endurskoðunarmiða strax við fyrstu skoðun. Björn Kristjánsson, sérfræðingur hjá FÍB, hvatti eigendur slíkra bifreiða til að mynda til þess að fylgjast vel með ástandi bifreiða sinna á dögunum. „Við erum að heyra svipaðar fréttir frá Noregi þótt það sé ekki búið að birta tölur þaðan. En það er að koma núna reynsla á þessa tegund af bílum og þetta er niðurstaðan. Að um 45 prósent af bifreiðunum fá þá athugasemd í aðalskoðun og sérstaklega er verið að benda á að það sé slit í hjólabúnaði, slit í stýri og bremsur séu ábótavant og að ljósastillingar séu heldur ekki í lagi.“ Sett út á ýmislegt Samgöngustofa hefur tekið saman gögn fyrir Vísi sem sýna hversu algengt er að bifreiðar af gerðinni Tesla Y þurfi í endurskoðun. Sem áður segir þurftu 206 af 711 slíkum bifreiðum í endurskoðun í fyrra. Það sem sett var út á í aðalskoðunum bifreiðanna var eftirfarandi: hemlarör, hjólbarðar, virkni aksturshemils, hjólspyrnur, armar og stífur, festingar öryggisbelta/læsinga, fjaðrabúnaður og jafnvægisstöng, hemlaskálar og hemladiskar, hemlastrokkar og hemladælur, hjólalegur, höggdeyfar og höggdeyfafestingar, ljósker og lýsing aðalljósa, rúður, sjónsvið ökumanns, slökkvitæki, spindilkúla, stilling aðalljósa, framrúðusprautur, gírbúnaður og aflrás út í hjól, raftengi fyrir eftirvagn og sjúkrakassi. Árið áður þurftu aðeins þrjár slíkar bifreiða í endurskoðun af 69 sem fóru í aðalskoðun. Það gerir fjögur prósent bifreiða. Þá var sett út á hjólbarða, hjólspyrnur, arma og stífur, slökkvitæki og framrúðuþurrkur. Á götum landsins eru tæplega 9.500 Teslu-bílar, þar af 6.700 Tesla Y. Árið 2023 voru 3.575 Tesla Y nýskráðar, svo búast má við því að á næsta ári muni töluverður fjöldi bíla gangast undir skoðun, þar sem færa skal ökutæki til reglubundinnar skoðunar innan fjögurra ára eftir að ökutækið var fyrst skráð. Minni bróðirinn kemur betur út Vísir falaðist einnig eftir sömu upplýsingum um bifreiðar af gerðinni Tesla 3, sem kalla mætti minni bróður Tesla Y. Á götum landsins eru 2.485 Tesla 3-bílar. Í fyrra fóru 556 slíkar bifreiða í aðalskoðun og 87 þeirra þurfu í endurskoðun. Það gerir tæplega 16 prósent. Þá var sett út á útsýn (rúður, þurrkur og spegla), ljósabúnað (ljós, glit og rafbúnað), hjólbarða, yfirbyggingu (dyr, hjólhlífar, rúður, belti, undirvörn og rými), fjaðrabúnað og jafnvægisstöng, skemmda framrúðu, gírbúnað og aflrás út í hjól, hemlaborða og hemlaklossa, hemlaskálar og hemladiska, hjólalegur, hjólbarða, hjólspyrnur, arma og stífur, lekamengun, öryggispúðakerfi (SRS), rúður, spegla og baksýnisbúnað, spindilkúlu, virkni aksturshemils, framrúðusprautur, hjólastöðu, hjólbarða og ljósker og lýsingu númersljóskera. Árið áður fóru 805 í aðalskoðun og 75 prósent fengu boðun í endurskoðun. Það gerir um níu prósent. Þá var sett út á útsýn (rúður, þurrkur og spegla), ljósabúnað (ljós, glit og rafbúnað), hjólbarða, yfirbyggingu (dyr, hjólhlífar, rúður, belti, undirvörn og rými), fjaðrabúnað og jafnvægisstöng, skemmda framrúðu, gírbúnað og aflrás út í hjól, hemlaborða og hemlaklossa, hemlaskálar og hemladiska, hjólalegur, hjólbarða, hjólspyrnur, arma og stífur, lekamengun, öryggispúðakerfi (SRS), rúður, spegla og baksýnisbúnað, spindilkúlu, virkni aksturshemils, framrúðusprautur, hjólastöðu, hjólbarða og ljósker og lýsingu númersljóskera.
Tesla Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira