PGA-mótaröðin endurheimtir helsta skúrkinn af LIV Kjartan Kjartansson skrifar 30. janúar 2026 12:33 Patrick Reed með verðlaunagripinn fyrir að sigra í Dúbaí á evrópsku mótaröðinni um helgina. Á höfðinu er hann með derhúfu merkta LIV-liðinu Ásanna fjögurra. Reed reyndist lumu á öðrum ási uppi í erminni því hann lagði spilin á borðið og yfirgaf LIV rétt eftir sigurinn. Vísir/EPA Patrick Reed, siguvegari á Masters árið 2018, er hættur á LIV-mótaröðinni og fær að snúa aftur á PGA-mótaröðina seinna á þessu ári. Hann er annar þekkti kylfingurinn sem LIV missir á skömmum tíma en með honum endurheimtir PGA-mótaröðin eina umdeildustu stjörnu sína á síðari árum.
Vistaskipti Reed báru nokkuð brátt að. Hann greindi frá því eftir að hann sigraði á móti á evrópsku mótaröðinni í Dúbaí um helgina að hann væri ekki búinn að endurnýja samning sinn við LIV. Á miðvikudag var svo upplýst að Reed sneri ekki aftur á LIV-mótaröðina. Þess í stað spilar Reed á DP-mótaröðinni evrópsku á þessu ári. Hann verður gjaldgengur á PGA-mótaröðinni aftur á næsta tímabili sem hefst í haust. „Ég er spenntur að tilkynna að ég snýr aftur á PGA-mótaröðina sem fyrrverandi sigurvegari tímabilið 2027 og að ég er gjaldgengur til að byrja að keppa í PGA-mótum seinna á þessu ári,“ sagði Reed í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann tilkynnti um ákvörðun sína. LIV staðfesti brotthvarf Reed og sagði að samningar hefðu ekki náðst á milli þeirra. Reed var einn fyrstu kylfinganna sem tóku boði Sádiaraba sem stofnuðu LIV um gull og græna skóga árið 2022. Uppfyllir ekki sömu skilyrði og Koepka PGA-mótaröðin bauð þröngum hópi LIV-kylfinga upp á tímabundna leið til að snúa aftur á sama tíma og hún tók við Brooks Koepka, fimmföldum risamótssigurvegara, fyrr í þessum mánuði. Sú leið var klæðskerasniðin að stærstu stjörnum LIV: Bryson DeChambeau, Jon Rahm og Cameron Smith. Enginn þeirra hefur enn þekkst boðið og hafa þeir allir sagst ætla að halda kyrru fyrir á LIV sem stendur. Reed uppfyllti ekki skilyrðin í tilboði PGA-mótaraðarinnar. Í yfirlýsingu PGA-mótaraðarinnar sagði að Reed hefði sagt upp aðild sinni að mótaröðinni áður en hann gekk til liðs við LIV. Hann hefði því ekki brotið reglur mótaraðarinnar, ólíkt mörgum öðrum þeirra sem sviku lit. Þannig öðlist Reed aftur keppnisrétt ári eftir síðasta LIV-mótið sem hann keppti á. Frá 25. ágúst geti hann þannig keppt í mótum með þvi að vinna sér sæti í þeim eða þiggja boð frá styrktaraðilum þeirra. Á næsta ári geti hann sótt aftur um fulla aðild að mótaröðina og fengi keppnisrétt sem fyrrum meistari. Ásakanir um svindl, nafnlaust níð og rýtingsstungur í bakið Reed er einn umdeildasti kylfingur síðari ára og er ekki ýkja vinsæll á meðal annarra kylfinga. Hann hefur ítrekað verið vændur um svindl á golfvellinum og eiginkona hans, sem hefur einnig verið kylfusveinn hans, var sögð stýra nafnlausum Twitter-reikningi sem skaut oft fast á ætlaða óvildarmenn Reed, PGA-mótaröðina og fleiri. Þá er á allra vitorði deilur hans við fjölskyldu sína sem leiddu til þess að hann sleit öll tengsl við foreldra sína. Á tímabili var Reed þekktur sem „Captain America“ fyrir vasklega framgöngu í Ryder-bikarnum, sérstaklega eftir eftirminnilegt einvígi við Rory McIlroy á Hazeltine-vellinum árið 2016. Eftir slæma útreið Bandaríkjanna tveimur árum síðar vakti Reed litla kátínu á meðal félaga sinna og liðsstjóra með því að gagnrýna allt og alla, nema sjálfan sig, í viðtali á meðan kampavín sigurreifra Evrópumannanna var enn kalt og freyðandi. Reed stefndi síðan manni og öðrum eftir að hann gekk til liðs við LIV, þar á meðal nokkrum fjölmiðlamönnum fyrir meint meiðyrði í sinn garð, og krafðist milljarða króna í miskabætur. Málaferli hans urðu til þess að McIlroy þurfti að taka á móti stefnu heima hjá sér á jólunum, nokkuð sem féll ekki sérlega vel í kramið hjá Norðuríranum. Framtíð LIV? Margir velta fyrir sér framtíð LIV-mótaraðarinnar eftir brotthvarf Koepka og Reed. Eftir að hafa valdið uppnámi í golfheiminum með því að stela nokkrum af stærstu stjörnum golfsins af PGA-mótaröðinni árið 2022 hefur hún skilað sádiarabískum eigendunum litlum árangir. Fáir mæta á LIV-mót, utan Ástralíu og Suður-Afríku, og sjónvarpsáhorf nálgast ekki einu sinni að vera hálfdrættingur á við PGA-mótaröðina. LIV hefur heldur ekki tekist að laða nýja stjörnu til sín frá því að Jon Rahm skipti óvænt yfir árið 2023. Brooks Koepka spilaði sinn fyrsta hring á PGA-mótaröðinni í tæp fjögur ár í gær. Hann lék suðurvöllinn á Torrey Pines í Kaliforníu á einu höggi yfir pari, tíu höggum á eftir efsta manni.AP/Denis Poroy Ekkert hefur orðið úr samruna LIV og PGA sem tilkynnt var um sumarið 2023 og loforð Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að hann kæmi á sættum hafa dagað uppi. Forsetinn sjálfur kvartar væntanlega ekki sjálfur því í ár keppa báðar mótaraðir á völlum í hans eigu í fyrsta skipti, hvort sem það er tilviljun eða ekki. Nú virðist fjara hratt undan LIV á meðan PGA-mótaröðinni vex ásmegin. Ekki liggur fyrir hvort að Sádarnir ætli að bregðast við með því að taka upp veskið á ný en svo virðist sem þeir hafi frekar unnið að því að draga saman seglin að undanförnu.
LIV-mótaröðin Bandaríkin Sádi-Arabía Tengdar fréttir Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01 Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Alþjóðlegt eyðsluæði Sádiaraba er sagt byrjað að renna af þeim og setja þeir nú ríkari skilyrði um að fjárfestingar þjóðarsjóðs þeirra skili sér heima fyrir. Sjóðurinn hefur veitt milljörðum og milljarða ofan víða um heim á undanförnum árum. 21. ágúst 2024 15:26 Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Sádiarabískir eigendur LIV-mótaraðarinnar í golfi hafa ráðið nýjan framkvæmdastjóra í stað Gregs Norman sem hefur stýrt henni frá byrjun. Ný framkvæmdastjórinn hefur meðal annars komið nálægt rekstri bandarískra körfubolta- og íshokkíliða. 16. janúar 2025 11:13 Mest lesið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Sló í fugl en það dugði ekki til Golf Fleiri fréttir „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Nate Diaz snýr aftur og keppir á kvöldi Rondu Rousey Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Besta sætið: Verðandi meistarar eða meiðslapésar? Júlía og Christina fara á sitt fyrsta HM Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fyrsta þjálfarastarfið á Ítalíu Cecilía hélt hreinu í fjarveru Karólínu Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Jafnar árangur Federer og Djokovic Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Ter Stegen fékk ekki að kjósa Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Sjá meira
Íþróttaþvottavél Sáda á fullum snúningi Sprengju var varpað inn í golfheiminn í vikunni þegar tilkynnt var um samstarf tveggja stærstu golfmótaraða heims við þjóðarsjóð Sádi-Arabíu sem höfðu eldað grátt silfur saman í á annað ár. Samstarfið er nýjasta útspilið í viðleitni Sáda til þess að kaupa sér áhrif og fegra ímynd sína í gegnum íþróttir. 10. júní 2023 08:01
Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Alþjóðlegt eyðsluæði Sádiaraba er sagt byrjað að renna af þeim og setja þeir nú ríkari skilyrði um að fjárfestingar þjóðarsjóðs þeirra skili sér heima fyrir. Sjóðurinn hefur veitt milljörðum og milljarða ofan víða um heim á undanförnum árum. 21. ágúst 2024 15:26
Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Sádiarabískir eigendur LIV-mótaraðarinnar í golfi hafa ráðið nýjan framkvæmdastjóra í stað Gregs Norman sem hefur stýrt henni frá byrjun. Ný framkvæmdastjórinn hefur meðal annars komið nálægt rekstri bandarískra körfubolta- og íshokkíliða. 16. janúar 2025 11:13