Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. janúar 2026 11:57 Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða og Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish. Vísir/einar/vilhelm Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir það afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin. Hann gefur lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa sé að ræða.
Fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætla að breyta kjörum starfsfólks í sjódeildum sínum. Yfirvinnulaun verða meðal annars lækkuð. Breytingarnar hafa áhrif á kjör tugi starfsmanna. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, segir lækkunina nema allt að tuttugu prósentum hjá Arnarlaxi. Um mun minni lækkun sé að ræða hjá Arctic fish. Hann hvetur fyrirtækin til að leita annarra leiða til að hagræða í rekstri. „Launalækkunin fer þannig fram að hún tekur gildi fyrsta maí, sem er nokkuð táknrænt fyrir okkur. Þetta er baráttudagur verkafólks. Ég held að starfsfólki svíði það nú miklu meira því að þau upplifa mikla reiði og það eru sárindi yfir þessu. Það er komið ákveðið vantraust til stjórnenda út af þessu. Þetta er starfsfólk sem hefur lagt sig gríðarlega fram til að koma fyrirtækjunum á þann stað sem þau eru á í dag,“ segir hann og tekur fram að starfsaðstæður starfsfólks séu verulega erfiðar. Hvatinn til að leggja sig fram í vinnunni sé farinn með þessu. Segir grunnlaun starfsmanna hækka Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, segir að í raun muni grunnlaun starfsmanna hækka. Þeir sem vinna minna en 45 tíma í yfirvinnu á mánuði hækki í launum. Einnig sé verið að stytta vinnuvikuna. Vinnuskylda fer úr 173 tímum niður í 165 tíma. „Fyrir mánaðarlaunin sín fá þau í raun hærra tímakaup, sama kaup fyrir minni vinnu. En auðvitað lækkar yfirvinnutaxtinn. Við greiðum eftir kjarasamningum og rúmlega það,“ segir Daníel. Finnbogi segir stóran hluta vinnutíma starfsmanna í sjódeild fyrirtækjanna vera í yfirvinnu. „Það hefur verið krafan hjá fyrirtækjunum að það sé unnin töluverð yfirvinna. Þeir hafa borgað vel fyrir það fram að þessu. Það má segja að þeim uppgripum sé lokið. Arnarlax er líka að fara í stærri breytingar. Þeir eru að fara í breytingar á vinnufyrirkomulagi. Það eru teknir út ákveðnir hlutir út úr pakkalaununum og síðan er verið að taka út og lækka yfirvinnuálagið. Það getur verið að heildarlaunin verði lægri, sérstaklega hjá þeim sem vinna mikla yfirvinnu.“ Gefur lítið fyrir rök um leiðréttingu Forstjóri Arctic Fish sagði að í raun hafi fyrirtækið borgað mun hærri yfirvinnu en tíðkast á almennum vinnumarkaði um árabil vegna slæmra ráðlegginga á þeim tíma. Nú sé verið að leiðrétta það. „Starfsmenn á sjó hafa fengið 20 prósent of hátt yfirvinnukaup miðað við dagvinnuna sem þau eru með. Við ákváðum að leiðrétta þetta og færa yfirvinnuna til samræmis við það sem aðrir starfsmenn fá,“ segir Daníel. Finnbogi segir það með engu réttlæta ákvörðunina. „Nei, ég get ekki séð það. Fyrirtækið velur að yfirborga fólki sem er að vinna góða vinnu. Manni finnst mjög slæmt að fyrirtæki sem eru í góðum rekstri skuli grípa til þess að fara í þann hóp sem er að vinna mikilvægustu og erfiðustu störfin og já við skulum lækka launin þeirra. Það er mjög sérstakt.“ Hann tekur fram að þetta sendi verulega neikvæð skilaboð til nærsamfélagsins og starfsmanna. Þetta gefi í skyn að fyrirtækjunum sé sama um nærumhverfi sitt. Ekki náðist í neinn hjá Arnarlaxi við vinnslu fréttarinnar.
Landeldi Vesturbyggð Ísafjarðarbær Fiskeldi Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira