Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 31. janúar 2026 14:04 Sigurbjörg Rut Hoffritz, afhendir hér Braga bæjarstjóra listann. Með þeim á myndinni er Heiða Ösp Kristjánsdóttir (t.h.), sviðstjóri fjölskyldusviðs og Sandra B. Clausen Magnús Hlynur Hreiðarsson Mikill áhugi er hjá foreldrum, sem eiga börn á Hjallastefnu leikskóla á Selfossi að næsti grunnskóli, sem verður byggður í bæjarfélaginu verði Hjallastefnuskóli. Undirskriftarlisti þess efnis hefur verið afhentur bæjaryfirvöldum í Árborg.
Í dag rekur Hjallastefnan 15 leikskóla og þrjá grunnskóla í ellefu sveitarfélögum. Skólarnir eru í Garðabæ, Hafnarfirði og í Reykjavík. Nú hafa foreldrar barna í Hjallastefnuleikskólanum Árbæ á Selfossi afhent bæjaryfirvöldum í Árborg undirskriftalista með 133 nöfnum þar sem skorað er á sveitarfélagið að koma upp Hjallastefnugrunnskóla í Árborg. Sigurbjörg Rut Hoffritz er í forsvari fyrir undirskriftalistann. „Þetta mál snýst um það að við foreldrar á Árbæ erum gríðarlega ánægð með starfið, sem er unnið á leikskólanum en Hjallastefnan tók við leikskólanum fyrir nokkrum árum síðan og okkur langar að geta valið um það hvort að börnin okkar fari í skóla á vegum Hjallastefnunnar,” segir Sigurbjörg Rut. Yrði þetta eitthvað öðruvísi grunnskóli en aðrir grunnskólar, Hjallastefnugrunnskóli? „Já, Hjallastefnan rekur leikskólana sína og grunnskólana eftir ákveðinni stefnu, þannig að já, starfið er öðruvísi, það er bara öðruvísi uppbyggt og okkur líkar sú uppsetning,” segir Sigurbjörg Rut. En hvað segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, verður næsti grunnskóli, sem verður byggður í sveitarfélaginu Hjallastefnuskóli ? „Það verður bara spennandi að vinna málið áfram hvort þetta sé möguleiki og við munum vinna það bæði með foreldrum og skólasamfélaginu hjá okkur þannig að það eru bara bjartir tímar fram undan og mjög spennandi,” segir Bragi. Þannig að þú ert greinilega bara bjartsýnn? „Ég er alltaf bjartsýnn og þetta skiptir okkur sveitarfélagið bara svo miklu máli að hafa valmöguleika, við viljum hafa valmöguleika í samfélaginu og þetta er bara mjög gott innlegg í umræðuna og sýnir ákveðna þörf þannig að nú er boltinn hjá sveitarfélaginu að vinna áfram,” segir Bragi. Kannski verður næsti grunnskóli, sem verður byggður í Árborg Hjallastefnugrunnskóli.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sandra B. Clausen, sem á barn í Hjallastefnuleikskólanum Árbæ á Selfossi kenndi um tíma í Hjallastefnu grunnskóla í Hafnarfirði. „Þannig að ég þekki svolítið inn á þennan þægilega mjúka aga, sem að einkennir Hjallastefnuna. Það er bara þetta undirliggjandi að þurfa ekki að vera með einhverjar skipanir og hækka róminn og allt þetta, heldur. Krakkarnir finna sinn ramma og vita hvar þau standa innan kjarnans og líður bara þannig vel,” segir Sandra.
Árborg Leikskólar Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira