Innlent

Vil­hjálmur Árna­son leiðir Sjálf­stæðis­menn í Reykja­nes­bæ

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Vilhjálmur Árnason leiðir listann í Reykjanesbæ.
Vilhjálmur Árnason leiðir listann í Reykjanesbæ. Vísir/Anton Brink

Vilhjálmur Árnason alþingismaður leiðir lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Hann hlaut 58 prósent atkvæða í prófkjöri flokksins.

Hann atti kappi við þá Ásgeir Elvar Garðarsson sem hafnaði í öðru sæti með 510 atkvæði og Unnar Stefán Sigurðsson sem hafnaði í því þriðja með 277 atkvæði.

Kosningu lauk klukkan átta í kvöld en alls tóku 1861 þátt sem er jafnframt mesta þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×