Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Carglass 9. febrúar 2026 10:30 Algengt er að fólk aki um með stjörnu í framrúðunni án þess að gera neitt í því en yfirleitt er mjög auðvelt að laga slíkar skemmdir. Carglass hefur hafið starfsemi á Íslandi og opnað nýtt verkstæði að Dalshrauni 20 í Hafnarfirði. Fyrirtækið er þekkt víða um heim fyrir sérhæfða þjónustu á sviði bílrúða og leggur ríka áherslu á rúðuviðgerðir fremur en skipti þegar það er mögulegt. Markmiðið er að bjóða skilvirka þjónustu sem sparar bæði tíma og kostnað fyrir ökumenn.
Kjartan Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Carglass á Íslandi og Eddie Irving, svæðisstjóri Carglass. „Það er ótrúlega algengt að fólk aki um með stjörnu í framrúðunni án þess að gera neitt í því en yfirleitt er mjög auðvelt að laga þetta. Ef ekkert er að gert mun í langflestum tilfellum springa út frá stjörnunni og þá er rúðan ónýt.“ Þetta segir Kjartan Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Carglass á Íslandi. Hann bendir jafnframt á að tryggingafélög bjóði upp á viðgerðir að kostnaðarlausu og hvetur fólk til að panta tíma hjá Carglass og láta gera við stjörnu í framrúðu sem fyrst. „Um leið og skipta þarf um rúðu erum við komin í allt annan kostnað. Á heimasíðu Carglass er bókunarferlið einfalt og aðgengilegt þar sem að velja þá þjónustu sem við á." „Það er hægt að panta tíma hjá okkur og láta meta skemmdirnar, nú eða panta í viðgerð og fá sér kaffi meðan viðgerðin fer fram. Tæknin er orðin gríðarlega góð í viðgerðum og við erum með framúrskarandi búnað,“ segir Kjartan. Carglass á Íslandi er hluti af Belron samsteypunni sem starfar í 44 löndum. Samstæðan setur strangar kröfur um verklag aðbúnað og tæknibúnað og tryggir þannig samræmd gæði þjónustunnar. Verkstæðið í Hafnarfirði er sett upp samkvæmt þessum stöðlum. „Við erum vel tækjum búin, vel þjálfuð og með aðgang að öllum nýjungunum,” segir Kjartan. „Við sjáum fyrir okkur frekari stækkun og stefnum á að opna á fleiri stöðum í náinni framtíð.“ Með komu Carglass til landsins fá íslenskir ökumenn aðgang að sérhæfðri þjónustu sem leggur áherslu á hagkvæmni öryggi og sjálfbærni.
Bílar Tryggingar Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira