Ekkert lát á austlægum áttum Atli Ísleifsson skrifar 5. febrúar 2026 07:09 Allhvasst eða hvasst verður með suðurströndinni. Vísir/Anton Brink Ekkert lát virðist vera á áframhaldandi austlægum áttum næstu daga og gerir Veðurstofan ráð fyrir að víða verði stinningsgola eða kaldi í dag. Allhvasst eða hvasst verður með suðurströndinni og þá nálgast úrkomubakki úr suðaustri.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að síðdegis sé von á snjókomu eða slyddu um austanvert landið, fyrst suðaustantil, og útlit sé fyrir að það hlýni þar og bæti í úrkomu með rigningu er líður á kvöldið. „Skafrenningur getur fylgt snjókomunni inn til landsins og á fjallvegum víða um landið austanvert og því æskilegt að hafa varann á. Dregur svo úr úrkomu seint í kvöld og nótt. Þurrt verður að mestu á Vesturlandi.Á morgun verður hægari vindur og rigning eða skúrir sunnantil, en dálitlar skúrir eða él um á stöku stað um landið norðanvert. Léttir til síðdegis, fyrst austantil.Um helgina kólnar heldur og útlit fyrir fremur hægar austlægar áttir og stöku él, einkum norðan jökla, en annars víða bjartviðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austlæg átt 5-13 m/s og dálitlar skúrir eða él, en allhvasst í Öræfum eftir hádegi og birtir víða til um austanvert landið. Hiti 0 til 6 stig, en víða vægt frost um landið norðanvert. Kólnar norðaustantil síðdegis. Á laugardag: Norðaustan og austan 5-13 m/s og él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti um eða undir frostmarki. Á sunnudag og mánudag: Ákveðin austan- og norðaustanátt norðvestantil og með Suðurströndinni. Rigning, slydda eða snjókoma með köflum, en að mestu þurrt suðvestantil. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt og rigningu, slyddu eða snjókomu eftir hádegi norðan- og austantil. Úrkomulítið á suðvestanverðu landinu. Hiti um eða yfir frostmark. Á miðvikudag: Útlit fyrir norð- og norðaustlægar áttir og dálitlar skúrir eða él, en þurrt að mestu suðvestantil. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Fleiri fréttir Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Sjá meira