Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 21:59 Dánjal Ragnarsson skoraði fjögur mörk í kvöld og Fram hélt Haukum á toppnum. vísir/Vilhelm Meistarar Fram hófu leik af miklum krafti eftir EM-hléið í Olís-deild karla í handbolta. Þeir stöðvuðu sigurgöngu Aftureldingar og komu um leið í veg fyrir að Mosfellingar kæmust á topp deildarinnar.
Haukar tróna nú á toppnum í æsispennandi titilbaráttu en þeir unnu Val í kvöld og eru liðin jöfn að stigum en Haukar með betri innbyrðis úrslit. Afturelding, sem hafði unnið fjóra síðustu leiki fyrir hléið, er svo aðeins stigi þar á eftir. Framarar, sem unnu Aftureldingu 30-26 í kvöld, eru hins vegar aðeins í 7. sæti en nú með 18 stig, sex stigum frá toppliðunum eftir 16 umferðir af 22. Fram náði snemma frumkvæðinu í kvöld og var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16-12. Afturelding minnkaði hins vegar fljótt muninn í seinni hálfleik, niður í eitt mark, en eftir að staðan hafði verið 19-18 áttu Framarar frábæran kafla og komust í 28-20, þegar tíu mínútur voru eftir. Eftir það var aldrei spurning hvernig færi og niðurstaðan að lokum fjögurra marka sigur heimamanna. Breki Hrafn Árnason átti flott kvöld í marki Framara og varði 14 skot, með 35% markvörslu, samkvæmt HB Statz. Eiður Rafn Valsson var markahæstur þeirra með sex mörk og Erlendur Guðmundsson skoraði fimm. Hjá Aftureldingu var Árni Bragi Eyjólfsson með sex mörk og Ævar Smári Gunnarsson fimm. Sigurjón Bragi Atlason varði sex skot af tuttugu, eða 30%, og Einar Baldvin Baldvinsson var með fjögur varin skot af nítján, eða 21,1%.
Olís-deild karla Fram Afturelding Mest lesið Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Bjarki Már til franska stórveldisins Handbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira