Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 23:33 Héraðsdómur Suðurlands á Selfossi. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur ómerkt dóm yfir mæðgum sem voru sakfelldar fyrir meiri háttar skattsvik, þar sem í ljós kom að héraðssaksóknari hafði sent dómaranum ótilbúin drög að ákæru, sem voru allt öðruvísi en lokaútgáfan. Málið verður því aftur tekið upp í Héraðsdómi Suðurlands.
Héraðsdómur Suðurlands hafði dæmt mæðgurnar Írisi Heru Norðfjörð Jónsdóttur, fyrrverandi eiganda Kryddleginna hjarta, og dóttur hennar, Brynju Norðfjörð Gunnarsdóttur, til þess að greiða samtals 66 milljónir króna í sekt. Móðirin hlaut einnig tíu mánaða skilorðbundinn dóm og dóttirin sex mánaða dóm. Málið sneri að skattframtölum mæðgnanna og fjölskylduvinkonu sem höfðu allar tekið við himinháum fjárupphæðum frá spænskum auðkýfingi á árunum 2014-2017. Þeim var gefið að sök að hafa ekki talið fram upphæðirnar sem peningagjafir í skattframtölum sínum, en fjölskylduvinkonan gat sýnt fram á að hún hafi talið fram upphæðina sem lán. Mál kvennanna þriggja vakti talsverða athygli á sínum tíma enda var um að ræða greiðslur upp á á þriðja hundrað milljóna króna sem ekki voru taldar fram á skattframtölum kvennanna. Landsréttur kvað aftur á móti upp sinn úrskurð í þessu máli í dag þar sem dómur héraðsdóms var ómerktur og málinu vísað aftur í hérað til nýrrar meðferðar. Var það vegna þess að héraðssaksóknari hafði fyrir mistök sent ófullgerð drög í stað endanlegrar ákæru þegar hann sendi ákæruna rafrænt til héraðsdóms. Héraðsdómari hafi svo fellt það skjal í heild sinni inn í dóminn. Með öðrum orðum: Sú ákæra sem héraðsdómur tók upp var ekki sú sama og var gefin út á hendur mæðgunum. Þannig voru mæðgurnar sakfelldar fyrir umfangsmeiri fjársvik en ákært var fyrir. Dómurinn komst þannig að þeirri þversagnakenndu niðurstöðu að Brynja hafi komist hjá að greiða í tekjuskatt og útsvar samtals tæpar 18 milljónir króna en við ákvörðun refsingar var miðað við 21 milljón. Í greinargerð ákæruvaldsins segir að töluverður munur hafi verið á þeim drögum og lokaútgáfu kærunnar, bæði hvað verknaðarlýsingu varðar og tölulega þætti. Auk þess væri kröfugerð ekki hin sama. Ákæruvaldið viðurkenndi þá að það væri ekki hjá því komist að ómerkja dóminn og taka málið aftur upp í héraðsdómi. Allur áfrýjunarkostnaður málsins, þar með talin málsvarnarlaun kvennanna þriggja, greiðast úr ríkissjóði, segir í dómnum.
Dómsmál Efnahagsbrot Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira