Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið – bara framkvæmanlegt Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir og Gunnhildur Sveinsdóttir skrifa 7. febrúar 2026 12:02 Um þessar mundir er mikið rætt um ofþyngd og þyngdarstjórnunarlyf. Sú umræða dregur vel fram hversu flókið viðfangsefnið er. Ofþyngd er ekki spurning um skort á vilja eða þekkingu, heldur samspil aðstæðna, umhverfis, erfða, lífsstíls og daglegra venja. Í þeirri mynd skiptir miklu máli hvernig okkur tekst að næra okkur vel í hæfilegu magni, dag eftir dag, ár eftir ár. Þegar ákveða þarf hvað er í matinn Spurningin „Hvað er í matinn?“ kemur oft þegar liðið er á daginn, orkan er lítil og tíminn naumur. Þá verður einfaldasti og fljótlegasti kosturinn gjarnan fyrir valinu jafnvel þótt við vitum vel að annar kostur væri skynsamlegri. Flest vitum við líklega hvað telst hollur matur en þekking breytir ekki venjum nema hún komist í framkvæmd í amstri dagsins. Gott og einfalt, hagnýt leið að betra mataræði SÍBS og Krabbameinsfélag Íslands hafa tekið höndum saman um að reyna að auðvelda fólki að fara eftir næringarráðleggingum. Matarvefurinn gottogeinfalt.is er safn uppskrifta af bragðgóðum og hollum hversdagsmat með áherslu á einfaldleika og hagkvæmni. Allar uppskriftirnar taka mið af opinberum ráðleggingum um mataræði sem byggja á sterkum vísindalegum grunni. Uppskriftirnar eru settar fram með skýrum leiðbeiningum sem gera fólki auðveldara að elda næringarríkan mat, líka þegar lítið svigrúm er til staðar. Vefurinn er óhagnaðardrifinn og öllum aðgengilegur. Skipulag sem léttir daglegt líf Á vefnum er hægt að skipuleggja vikumatseðla, stilla skammtastærðir og búa til innkaupalista sem taka mið af raunverulegum þörfum heimila. Einnig er auðvelt að leita að uppskriftum eftir innihaldsefnum, tegundum rétta eða sérþörfum, til dæmis þegar huga þarf að ofnæmi, óþoli eða ólíkum smekk innan fjölskyldunnar. Þannig verður heilsusamlegra mataræði ekki stórt átak, heldur röð smárra skrefa sem hægt er að taka eitt í einu. Áður en ójafnvægi skapast Í umræðu um ofþyngd skiptir máli að horfa ekki aðeins á úrræði þegar vandinn er orðinn mikill heldur einnig á það hvernig megi styðja fólk áður en ójafnvægi skapast. Að gera góðar og hollar uppskriftir aðgengilegar og bjóða upp á gerð vikumatseðla og innkaupalista einfaldar allt skipulag í kringum eldhúsverkin og er því hluti af þeirri lausn. Lítil skref sem halda til lengri tíma Kannski liggur lykillinn ekki í því að gera alltaf allt rétt, heldur í því að gera sitt besta og gera það aftur og aftur. Hollt mataræði þarf ekki að vera flókið. Það þarf fyrst og fremst að vera framkvæmanlegt. Höfundar eru Gunnhildur Sveinsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur hjá SÍBS, og Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir næringarfræðingur og sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matur Heilsa Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar