Skortur á framtíðarsýn Guðrún Schmidt skrifar 7. febrúar 2026 07:31 Núna á tímum þar sem náttúra heimsins og þar með talið Íslands hrópa á vægð og virðingu er það stefna Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhanns Páls Jóhannssonar, að auka orkusækinn iðnað um land allt á kostnað náttúrunnar. Hann sér fyrir sér að fleiri gagnaver, meira landeldi og öflugar verksmiðjur með vel launuðum störfum geri Ísland að betra samfélagi til að búa í, eins og hann skrifaði þann 4. febrúar 2026 á fésbókarsíðu sinni. Með fullri virðingu þá sýnist mér að ráðherrann er ekki einungis búinn að gleyma að hann er ekki bara orkumálaráðherra heldur einnig umhverfis- og loftslagsráðherra. Auk þess virðist hann hafa gleymt því að núna er árið 2026 þar sem við verðum, já við bara verðum, að vinna hratt og örugglega að náttúru- og loftslagsvernd til að afstýra verstu hörmungum loftslagshamfara. Ekki framtíðarvænt Sú framtíðarsýn sem ráðherrann boðar gengur ekki upp og er ekki framtíðarvæn. Það er ekki í boði að eyðileggja meira af náttúru sem er grundvöllur tilveru okkar. Nú þegar hefur mannkynið gengið svo freklega á auðlindir jarðar að það hefur farið yfir þolmörk sjö lykilkerfanna sem eru vegna loftslagsbreytinga, röskunar á náttúrulegri hringrás köfnunarefnis og fosfórs, ferskvatnsnotkunar, breytinga á landnotkun, minnkunar líffræðilegrar fjölbreytni, efnamengunar og nýlega sumarið 2025 líka vegna súrnunar sjávar. Öll eru þessi níu kerfi nátengt og háð hvert öðru þannig að hvers kyns hnignun á náttúru kyndir undir hnignun þessara kerfa og samspils þeirra. Hvert einasta land ber ábyrgð á því að ganga ekki meira á náttúruna heldur stuðla að vernd og endurheimt hennar. Ísland er ríkt land og ber því að ganga á undan með góðu fordæmi til að uppfylla alþjóðlega samninga á borð við Parísarsamninginn, samning um líffræðilega fjölbreytni og stefnu um sjálfbæra þróun. Hér hef ég fjallað um hnattrænu áhrifin og ábyrgð okkar þar, staðbundin áhrif orkusækins iðnaðar á náttúru landsins eru líka víðtæk, á vistkerfin, lífríkið, víðernin, óbyggðinar, lífsgæði, útivist, sálarlíf, uppsprettu innri orku og sköpunar. Á allt það sem gerir Ísland að Íslandi, er sérstakt og eftirsóknarvert. Sem Umhverfis- og loftslagsráðherra þyrfti Jóhann Páll að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að vernda okkar einstaka land. Ekki í boði Það getur ekki verið í boði að síauka orkuframleiðslu í landi sem framleiðir átta sinnum meiri raforku á íbúa en meðaltalið í Evrópu og þar sem orkuneysla á mann sé sú næstmesta í heimi. Stefna um að svara óseðjandi eftirspurn eftir orku eða stefna um að draga saman orkuneyslu og -sóun mun skera úr um árangur við orkuskipti. Á heimsvísu hefur aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku hingað til að mestu leyti einungis mætt ört vaxandi orkuþörf frekar en að leysa jarðefnaeldsneyti af hólmi, eins og ný rannsókn sýnir. Þannig hefur kolefnislosun haldið áfram að aukast þrátt fyrir mikla uppbyggingu á endurnýjanlegum orkugjöfum. Við munum varla ná árangri í að minnka losun í gegnum orkuskipti ef við minnkum ekki heildarorkunotkun í ríku löndunum. Jóhann Páll talar m.a. um fleiri gagnaver en þau ásamt mikilli kæliþörf eru í dag aðaldrifkraftar aukinnar orkueftirspurnar á heimsvísu. Við hér á Íslandi erum gjarnan að hampa okkar endurnýjanlegu orku út á við en ef okkur tekst ekki að minnka orkuneyslu erum við ekki hluti af lausninni. Ísland er eftirbátur margra landa, ekki síst í Evrópu, þar sem raforkunotkunin náði hámarki árið 2008 og hefur síðan dregist saman um 10%. Grænn hagvöxtur er blekking Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur trú á að hagvöxtur og verndun náttúruverðmæta geti farið saman og stefnir ríkisstjórnin á svokallaðan „grænan hagvöxt“. Fylgjast þarf betur með alþjóðlegum rannsóknarniðurstöðum því grænn hagvöxtur er blekking. Niðurstöður úr skýrslu á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu frá 2019 brýna fyrir þörfinni að viðurkenna að stefna um grænan hagvöxt getur ekki gengið upp á hnattrænan hátt til lengri tíma. Fjölmargar aðrar alþjóðlegar rannsóknir hafa leitt það sama í ljós. Til dæmis þarfnast meiri hagvöxtur líka meiri orku. Þannig fer aukning á endurnýjanlegri orku aðallega í aukna orkunotkun vegna hagvaxtar en fer ekki í orkuskiptin. Bein fylgi er milli aukins hagvaxtar og heildarvistspors, en kolefnisspor er 60% af vistspori. Þannig vex m.a. auðlindanotkun með öllum sínum neikvæðum áhrifum á náttúru og loftslag. Á síðustu 50 árum hefur efnisnotkun þrefaldast og spáð er 60% vexti í auðlindanotkun fyrir árið 2060 ef við höldum áfram að fóðra hagvöxt. Áhrif efnisvinnslu á loftslag og líffræðilegan fjölbreytileika munu fara langt fram úr markmiðum Parísasamkomulags og samkomulags um líffræðilega fjölbreytni. Ný sýn Það er grátlegt að reynt er hér að bjóða okkur upp á framtíðarsýn sem varð til fyrir mörgum áratugum síðan og á stóran þátt í þeirri stöðu sem blasir við heiminum með loftslagshamförum og ósjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Þær aðferðir sem eiga þátt í loftslagsbreytingum og hnignun náttúrunnar geta ekki líka verið lausn að þeim vandamálum. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er hvattur til að horfast í augu við áskoranir samtímans, horfa út fyrir kassann og búa til nýja framtíðarsýn þar sem hann stendur með náttúrunni og lífinu. Höfundur er fræðslustjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Umhverfismál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun