Nennumessekki Bjarni Karlsson skrifar 8. febrúar 2026 09:31 Nú eru rúm áttatíu ár liðin frá lokum síðari heimsstyjarldar. Hugsið ykkur eftir önnur áttatíu ár ef aðalritari Sameinuðu þjóðanna segði sem svo af sínu púlti: „Kæru heimsbúar. Nú höfum við lifað þá tíma sem Gandhi, King og Mandela þráðu að sjá. Við höfum orðið vitni að hugafarsbreytingu þjóðanna. Loksins, loksins hefur almenningur fengið rödd og varpað af sér oki harðstjórnar. Eins erum við nú komin vel á veg með að leiðrétta stöðu mannkyns gagnvart náttúrunni.“ Ekkert verkefni kemst í hálfkvist við það erfiði að breyta hugarfari sínu. Frelsi Það sem sameinað hefur vestræna menningu er ekki síst trúin á einstaklinginn og krafan um að allir skuli njóta frelsis til að lifa sínu lífi. Það er falleg hugsun. En eitthvað hefur valdið því að í stað hinnar litríku fjölmenningar hefur samfélag okkar þróast þannig að það er einkum frelsið til að nota og njóta sem skilgreinir okkur. Þessi afmarkaða sýn á frelsi birtist í því að allt hefur verðmiða. Hverfið sem þú býrð í, skólarnir sem börnin þín ganga í, verslanirnar þar sem þú sækir nauðsynjar, íþróttamiðstöðin þín, afþreyingin sem þú stundar – allt hefur verðmiða. Sem gerir það að verkum að við kinkum kunnuglega kolli til ókunnugra því við erum í sama neysluklúbbi – svo lengi sem kortið virkar. Innan neyslusvigans sem við tilheyrum er kurteislega spjallað um áhugamál og notkun á hinu og þessu en við segjum ekki sögu okkar, ræðum ekki gildi okkar og líf af þeirri einföldu ástæðu að við nennum ekki veseni. Víða hafa neyslusvigarnir svo í vaxandi mæli orðið að hliðvörðum samfélögum. Ef einhver fer að þrasa um félagslega útilokun höfum við svör á reiðum höndum: Fólki skal vera frjálst að vera alls konar og ólíkt heima hjá sér, en í almannarýminu viljum við smjúga léttilega framhjá öllu þar til við komumst með okkar góss inn í okkar einkarými þar sem neyslan á sér stað. Frelsishugsjónin, sem í mannréttindayfirlýsingu SÞ varðaði rétt allra til lífs, frelsis og mannhelgi,[1] er orðin að hugmyndinni um að fá að njóta sinna gæða í friði fyrir öðrum. Ábyrgð Það sem styður þessa hugsun er önnur falleg hugmynd. Við viljum ekki bara frelsi einstaklingsins til að njóta, við krefjumst þess líka að fólk sé ábyrgt. En eitthvað hefur valdið því að það að vera ábyrg manneskja, sem fyrr var í því fólgið að ástunda virðingu og samlíðun, snýst nú einkum um það að láta ekkert lenda á öðrum. Eitt sinn var ábyrg persóna einhver sem kunni þá list að vera vakandi vitni að umhverfi sínu. Ábyrgur einstaklingur þekktist á því að hann virti fyrir sér menn og málefni, greindi samhengi, lét sér ekki á sama standa og leitaðist við að láta gott af sér leiða í orði og verki. Nú hefur ábyrgðarhugtakið þrengst þannig að það varðar frekar einstaklinginn einan. Ef þú bara hefur það sem þú þarft til þess að standa undir þinni einkaneyslu ertu ábyrg persóna samkvæmt þeirri hgmynd. Þessi ábyrgð getur svo yfirfærst á kjarnafjölskyldu þína, maka og börn, en ekki lengra. Segja má að við lifum í menningu þar sem gildi og siðferðisstaða fólks ráðist einkum af getunni til að standa ein og þurfa ekki á öðrum að halda. Á sama tíma og frelsishugsjónin hefur verið vængstífð, matreidd og borin fram sem nýtt og spennandi frelsi til einkaneyslu hefur ábyrgðarhugtakið verið soðið niður í minnstu mögulegu einingu og setningin sem við óttumst mest er orðin þessi: Kortinu þínu er hafnað! Skyldi hið nýja menningarheilkenni vestrænna þjóða, kvíðinn og einsemdin, eiga orsakir í þessu hugarfari? Ég held það. Gallað hugarfar Dr. Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur, telur að umræða um lífskjör þurfi m.a. að fela í sér siðferðilegt mat á þeirri velferð sem fólk býr við. Velferð okkar getur þá orðið fyrir tvenns konar skerðingum, annars vegar efnahagslegum og félagslegum en hins vegar með því að við göngum á rétt annarra. (Td. komandi kynslóða með því að lifa með ósjálfbærum hætti.) Ef lífsstíll minn grundvallast á yfirgangi, þá er líf mitt, að mati Ólafs Páls, ekki gott að því marki sem það byggist á yfirgangi, hversu þægilegt sem það annars kann að vera.[2] Ég vil nefna ferns konar ágalla í hugarfari okkar sem ég held að við verðum að skoða í þessu sambandi: Við lútum fúslega yfirráðum sterka mannsins frekar en að ástunda samráð. (Því þá þarf ekki að hugsa of mikið.) Við horfum fimlega framhjá hvers kyns orsakasamhengi og deildri ábyrgð en bíðum þess að einhver einn sé dreginn til ábyrgðar þegar eitthvað fer úrskeiðis. (Þá getum við andað léttar og haldið áfram okkar einkaneyslu í friði.) Við horfum til stjarnanna á himni frægðarinnar og nennum ekki að huga að almannahag. (Sem birtist m.a. í því að til viðbótar við vængstíft frelsishugtak og níðþröngt ábyrgðarhugtak höfum við hannað nýfrjálslynt hagvaxtarhugtak í þágu hinna fáu, svo viðskipti geti dafnað þótt lífið visni.) Við skilgreinum okkur sem einstaklinga fremur en þátttakendur í samfélagi manna og náttúru. (Það er svo einfalt og núllstillandi og hjálpar okkur t.d. að slaka á gagnvart hrottaskap á ókunnugu fólki í útlöndum. Eins getum við þá látið allt tal um vistkerfið sem vind um eyru þjóta. Ófæddar kynslóðir verða bara að finna út úr sínu ef veðrið fer eitthvað versnandi með árunum.) Vatnaskil? Þegar enginn man lengur Trump, Pútín og Netanjahú mun mannkyn hafa nöfn Gandhi, King, Mandela og annara velgjörðarmanna sinna á vörum. Þjösnarar eru ekki fyrst og fremst einstaklingar. Um fram allt eru þeir félagsleg afurð. Þeir eru holdgerfingar öfgafullrar einstaklingshyggju með sinni afbökuðu hugmynd um frelsi, ábyrgð og hagvöxt sem skilur okkur öll eftir óttaslegin, skammarfull og ein. Þjösnararnir eiga vald sitt undir því að við nennumessekki. Skyldum við sem nú lifum vera kynslóð vatnaskilanna þegar samráð óx en yfirráð hopuðu? Þegar við lærðum að halda hvert öðru ábyrgu frekar en veðja bara stíft á refsiábyrgð? Þegar hagur almennings og allrar náttúru var kúplaður saman við hagvaxtarhugtakið í bönkum? Þegar við loksins, loksins skildum að við erum samferða öllu sem lifir. Þátttakendur en ekki keppendur? Höfundur er prestur og siðfræðingur [1] 3. Grein mannréttindayfirlýsingar SÞ [2] Ólafur Páll Jónsson, „Lífskjör og réttlæti“, 219 og 227. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Karlsson Trúmál Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun