Sport

Dagur hringaður seint og þurfti að hætta

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Dagur Benediktsson lauk fjórum af sex hringjum.
Dagur Benediktsson lauk fjórum af sex hringjum.

Dagur Benediktsson var í 66. sæti þegar hann var hringaður og hætti keppni í 20 kílómetra skiptigöngu á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu.

Dagur kláraði fyrstu þrjá hringina í hefðbundnu skíðagöngunni en eftir fyrsta hring með frjálsri aðferð var hann hringaður.

Dagur var 61. sæti af 75 keppendum eftir fyrsta hring, 64. sæti eftir tvo hringi og 67. sæti eftir þrjá hringi en féll svo úr leik í 66. sæti, þá rúmlega sex mínútum og heilum hring á eftir fyrsta manni.

Dagur kláraði 13,3 kílómetra af 20 kílómetra göngunni á 37 mínútum og rúmum 45 sekúndum.

64 af 75 keppendum luku keppni en niðurstöður má finna hér

Norðmaðurinn Johannes Hoesflot Klæbo vann gullið, Frakkinn Mathis Deslogos vann silfur og Norðmaðurinn Martin Loewstroem Nyenget hlaut brons.

Johannes var sá sem hringaði Dag en hann er besti skíðagöngukappi heims um þessar mundir og var að vinna sjötta Ólympíugullið. 

Dagur keppir aftur á þriðjudag, þá í klassískri sprettgöngu. Hann er einn af fjórum keppendum Íslands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en dagskrá þeirra má sjá hér fyrir neðan.

Keppnisdagskrá Íslendinga

Dagur Benediktsson

8. febrúar – 20 km skiptiganga (10 km klassískt / 10 km frjálst)

10. febrúar – Sprettganga, klassískt

13. febrúar – 10 km frjálst

21. febrúar – 50 km klassískt

Kristrún Guðnadóttir

10. febrúar – Sprettganga, klassískt

12. febrúar – 10 km frjálst

Jón Erik Sigurðsson

14. febrúar – Stórsvig

16. febrúar – Svig

Elín Elmarsdóttir Van Pelt

15. febrúar – Stórsvig

18. febrúar – Svig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×