Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2026 20:11 Ye Quan sýnir hér svakaleg tilþrif við hlið Hannah Lim þegar þau sýndu æfingar sínar á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. getty/Matthew Stockman Einn keppenda Suður-Kóreu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina hefur mjög sterka Íslandstengingu þótt hann keppi ekki undir merkjum Íslands á leikunum.
Ísdansarinn Ye Quan keppir fyrir Kóreu en hann er kínverskur, alinn upp í Kanada og það merkilegasta er að hann er fæddur á Íslandi og bjó þar fyrstu tvö ár ævi sinnar. Ye Quan keppir ekki einsamall heldur er hann í skautaparakeppni með Hannah Lim. Þau sýndu rytmatísku æfingarnar sínar í ísdansinum í liðakeppninni á föstudaginn. Ófrísk þegar hún flutti til Íslands Móðir Ye Quan flutti til Íslands þegar hún varð ófrísk af honum. Ríkissjónvarpið rekur sögu fæðingarinnar „Á þessum tíma vann hún í kínversku borginni Dalian sem túlkur fyrir fyrirtæki í eigu Ketils Helgasonar sem stóð í fiskútflutningi frá Íslandi til Kína. Dalian er staðsett á austurströnd Kína ekki langt frá landamærunum við Norður-Kóreu. Ketill og eiginkona hans, Ingibjörg Vagnsdóttir (alltaf kölluð Inga), voru með annan fótinn í Kína á þessum tíma og þau björguðu Li úr flóknum aðstæðum og tóku hana með sér til Íslands þegar hún var barnshafandi og komu henni í skrifstofuvinnu í Bolungarvík,“ segir í frétt RÚV. Hjálpuðu þeim að flytja til Kanada Þriggja ára voru mæðginin flutt til Montreal í Kanada. Ketill og Inga hjálpuðu mæðginunum við að flytjast til Kanada, en hjónin þekktu vel til þar. Ye hafði ekki búið lengi í Kanada þegar hann hóf skautaæfingar því hann var aðeins fimm ára. Fyrst í listhlaupi í einstaklingsflokki en síðar færði hann sig yfir í ísdansinn sem er parakeppni. Bæði alin upp í Kanada Frá árinu 2019 hefur hann dansað með Hönnuh Lim, sem er einnig alin upp í Kanada. Foreldrar hennar koma hins vegar frá Suður-Kóreu. Eftir að hafa dansað í tvö ár fyrir hönd Kanada kom upp sú staða að þau kepptu fyrir Suður-Kóreu vegna róta Hönnuh. Skautapör geta keppt undir fána annars keppandans á alþjóðlegum mótum en á Ólympíuleikum þurfa báðir að vera ríkisborgarar sama lands. Það má lesa meira um þessa merkilegu sögu með því að smella hér.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Sjá meira