Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 10:47 Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dyflinni á Írlandi þann 9. febrúar síðastliðinn. Hann sást síðast utan við Highfield-sjúkrahúsið í átt að Collins-stræti. Írska lögreglan segir rannsókn á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni fyrir sjö árum enn í gangi og biðlar aftur til almennings um upplýsingar. Írskir lögreglumenn ræddu við um sextíu manns á Íslandi í fyrra.
Síðast spurðist til ferða Jóns Þrastar í Dyflinni á Írlandi fyrir réttum sjö árum, 9. febrúar 2019. Hann var staddur þar til að taka þátt í pókermóti. Írska lögreglan hefur forræði yfir rannsókninni á hvarfi hans. Í tilkynningu hennar í dag kom fram að rannsóknin væri enn virk. Óskaði hún enn eftir upplýsingum frá almenningi sem gæti varpað ljósi á afdrif Íslendingsins. „Jafnvel smávægilegustu upplýsingar, hversu ómerkilegar sem þær virðast, gætu hjálpað rannsókninni,“ segir í tilkynningunni. Sérstaklega hefur írska lögreglan áhuga á að heyra frá fólki sem var statt í Whitehall, Santry eða Collins-stræti að morgni 9. febrúar 2019 og þeim sem kunna að hafa séð eða rætt við Jón Þröst á þessum tíma. Lögreglan segist ennfremur styðja fjölskyldu Jóns Þrastar sem hafi mátt þola mikið álag og óvissu undanfarin sjö ár. „Við erum enn staðráðin í að finna svör fyrir hana,“ segir lögreglan. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu deildi tilkynningu írsku lögreglunnar í morgun. Þar kom fram að þegar írskir rannsóknarlögreglumenn komu til landsins síðasta sumar hafi þeir rætt við tæplega sextíu manns. Formlegar skýrslur hafi verið teknar af 46 manns.
Írland Erlend sakamál Leitin að Jóni Þresti Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira