Vill verða Bond illmenni Valur Páll Eiríksson skrifar 9. febrúar 2026 16:15 Gengið hefur á ýmsu hjá John Carew síðustu ár. Hann vill takast á við nýjan Bond. Mark Thompson/Getty Images Norski fyrrum fótboltamaðurinn John Carew á sér stóra drauma innan leiklistarinnar. Hann lærði iðjuna í leyni meðan hann var leikmaður Aston Villa á Englandi og hefur getið sér gott orð að undanförnu.
Carew átti fínasta fótboltaferil þar sem hann lék meðal annars með Roma á Ítalíu og Valencia á Spáni auk Villa. Carew er í dag 46 ára gamall og getur sér gott orð á hvíta tjaldinu. Hann lék nýlega í nýjustu Maleficent mynd Disney ásamt Angelinu Jolie og vakti þá athygli í norsku þáttunum Heimavellinum (Heimebane) sem sýndir voru á RÚV hérlendis fyrir nokkrum árum síðar. „Ég byrjaði að fara í leiklistartíma árið 2009,“ segir Carew í viðtali við The Athletic. „Ég vildi læra tæknina og hugmyndirnar í kringum þetta og þótti mjög áhugavert. Ég sagði liðsfélögunum mínum ekki frá þessu og gerði lítið úr tímunum. Þegar ég hætti gafst meiri tími í þetta,“ segir Carew sem var fanta framherji á sínum tíma, þekktur fyrir stærð sína og styrk. Hann er 195 sentimetrar að hæð og var lunkinn í teignum. Hann hætti í fótboltanum 2012 og leiklistin tók við. Hann vakti athygli fyrir hlutverk sitt í fótboltatengdu norsku þáttunum Heimavelli þar sem kona er ráðin sem þjálfari norsks karlaliðs. Carew lék stjörnu liðsins sem var ósátt við að fá sjálf ekki starfið. „Ég hefði verið leiður hefði ég ekki fengið það hlutverk,“ segir Carew en þættirnir hófu göngu sína árið 2018. Árið 2019 fékk hann þá hlutverk í myndinni Maleficent: Mistress of Evil. Þar fékk hann tækifæri til að leika gegnt Angelinu Jolie, Michelle Pfeiffer og Chiwetel Ejiofor. „Við Angelina voru saman á settinu í átta daga. Þetta var lítið hlutverk en maður áttar sig á því að þau geti líka verið mikilvæg. Ég fylgdist vel með og lærði mikið,“ segir Carew sem hefur sérstakt hlutverk í huga varðandi hans næsta verkefni. „Mig langar að vera illmenni í James Bond mynd. Ekki endilega megin illmennið en samverkamaður hans, launmorðingi. Hægri hönd hans sem tapar bardaga við Bond um miðja mynd,“ segir Carew. Nýrrar James Bond myndar er beðið með mikilli eftirvæntingu en Amazon keypti nýlega réttinn að myndunum af Broccoli-fjölskyldunni sem hefur annast framleiðslu þeirra frá upphafi. Nýs Bond er enn leitað eftir að Daniel Craig lék útsendara númer 007 í síðasta sinn árið 2021. Carew snertir á mörgu fleira í ítarlegu viðtali við The Athletic sem má lesa hér.
Noregur Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sjá meira