Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Elín Margrét Böðvarsdóttir og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 10. febrúar 2026 07:46 Guðmundur Heiðar Helgason almannatengill ræddi auglýsingarnar á Ofurskálinni í kvöldfréttum Sýnar í gær. Vísir/samsett Ofurskálin virðist festa sig betur í sessi sem íþrótta- og menningarviðburður hér á landi með hverju árinu sem líður. Almannatengill segir auglýsingarnar í kringum viðburðinn, sem verði súrari með hverju árinu, geta sagt okkur ýmislegt um tíðarandann hverju sinni.
Hinn árlegi risaviðburður Ofurskálin, eða Super Bowl, fór fram í fyrrinótt þar sem Seattle Seahawks báru sigur úr bítum gegn New England Patriots. Eins og svo oft áður fékk umstangið í kringum leikinn í raun meiri athygli en fótboltinn sjálfur. Sem dæmi má nefna auglýsingarnar en þeirra er beðið með álíka eftirvæntingu vestanhafs og ríkir fyrir áramótaskaupinu hér heima. Guðmundur Heiðar Helgason, hugmyndasmiður og almannatengill, segir fyrirtæki spreða milljörðum til að tryggja sér pláss í glugganum. „Ef þú ætlar að vera með Super Bowl auglýsingu þá er reglan yfirleitt go big or og home. Þú þarft annað hvort að vera með dúndrandi kreatíft efni eða þá frægt andlit, og bestu auglýsingarnar eru auðvitað með bæði,“ segir Guðmundur. Auglýsingarnar segi ýmislegt um tíðarandann hverju sinni. „Manni finnst svolítið síðustu ár að sýrustigið hafi hækkað svolítið. Auglýsingar eiga það kannski til að vera svolítið skrýtnari og það er mikið lagt upp úr húmor og það er mikið verið að spila svolítið inn á nostalgíuna, þessa fortíðarþrá,“ segir Guðmundur. Sé horft til Ofurskálarinnar um helgina megi sjá glögglega einnig hvernig auglýsingarnar geti breyst í takt við tíðarandann. „Við sjáum allt í einu að gervigreindin er orðin mjög áberandi,“ nefnir hann sem dæmi. Matur og snarl yfir leiknum gegnir oft stóru hlutverki einnig á Ofurskálarsunnudeginum, auk þess sem hvað mest eftirvænting ríkir jafnan fyrir hálfleiksatriðinu sem Bad Bunny sá um í ár. Sitt sýndist hverjum en fréttastofa tók púlsinn á nokkrum gestum Kringlunnar í gær og spurði út í þennan þekkta tónlistarmann frá Púertó Ríkó, en viðbrögðin má sjá í fréttinni hér að ofan.
Auglýsinga- og markaðsmál Ofurskálin Bandaríkin Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira