James Van Der Beek látinn Lovísa Arnardóttir skrifar 11. febrúar 2026 19:47 James van der Beek var opinn með það að hafa greinst með krabbamein og áhrifin sem það hafði á hann. Vísir/Getty Leikarinn James Van Der Beek, stjarna Dawson's Creek og sex barna faðir, er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Leikarinn, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Dawson's Creek og Varsity Blues, lést eftir baráttu við ristil- og endaþarmskrabbamein á þriðja stigi.
Eiginkona hans, Kimberly Van Der Beek, tilkynnti um andlát hans í færslu á Instagram. „Okkar ástkæri James David Van Der Beek lést friðsamlega í morgun,“ skrifar hún í færsluna og að hann hafi mætt sínum síðustu dögum með hugrekki, trú og reisn. „Það er margt sem hægt er að segja um óskir hans, ást hans á mannkyninu og helgi tímans. Þeir dagar munu koma. Í bili biðjum við um frið og næði á meðan við syrgjum okkar ástkæra eiginmann, föður, son, bróður og vin.“ View this post on Instagram A post shared by James Van Der Beek (@vanderjames) Van Der Beek, sem eignaðist sex börn með Kimberly, dæturnar Oliviu, Annabel, Emiliu og Gwendolyn, og synina Joshua og Jeremiah, greindi fyrst frá krabbameinsgreiningu sinni í viðtali við tímaritið People í nóvember 2024. Þar greindi hann frá því að krabbameinið hefði uppgötvaðist eftir hefðbundna ristilspeglun í ágúst 2023. Van Der Beek sagðist ekki hafa haft áhyggjur af skoðuninni, en þegar hann leit til baka hafi hann verið með einkenni. Í umfjöllun People um andlát hans kemur fram að van der Beek hafi síðast komið fram opinberlega í viðtali við Craig Melvin á Today þann 19. desember. Þar sagðist honum líða „miklu, miklu betur en fyrir nokkrum mánuðum.“ Það var fyrsta viðtalið hans eftir að hafa misst af endurfundum leikara Dawson's Creek vegna veikinda í september. Eiginkona hans, Kimberly, og sex börn þeirra mættu á viðburðinn í hans stað. Van Der Beek, sem fæddist 8. mars 1977 í Connecticut. Hann landaði aðalhlutverki Dawson Leery í Dawson's Creek og lék í þáttunum ásamt Katie Holmes, Joshua Jackson og Michelle Williams í sex þáttaröðum frá 1998 til 2003. Þættirnir gerðust í hinum skáldaða smábæ Capeside í Massachusetts og sögðu frá litlum vinahópi þar sem ástarlíf, vonir og draumar fléttuðust saman á meðan þau reyndu að fóta sig í menntaskóla og háskóla. Í þáttunum var fjallað um ýmis samfélagsleg mál eins og geðheilsu, dauða og hómófóbíu. Van Der Beek lék eftir það bæði í kvikmyndum og sjónvarpi, í Varsity Blues (1999), How I Met Your Mother (2005) og Don't Trust the B---- in Apartment 23 (2012–2013), meðal annarra.
Hollywood Krabbamein Andlát Bíó og sjónvarp Bandaríkin Tengdar fréttir Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Bandaríska Dawson's Creek stjarnan James Van Der Beek segist vera einkar þakklátur fyrir lífið þrátt fyrir að árið hafi leikið hann grátt. Hann greindist árið 2023 með þriðja stigs ristilkrabbamein og segir það í raun hafa verið það besta sem kom fyrir hann. 19. desember 2025 16:48 James Van Der Beek stígur fram: „Ég hef verið gripinn í rassinn af eldri og valdameiri mönnum“ "Ég hef skilning á skömminni, vanmættinu og vangetunni við að segja frá“ 12. október 2017 14:32 Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira
Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Bandaríska Dawson's Creek stjarnan James Van Der Beek segist vera einkar þakklátur fyrir lífið þrátt fyrir að árið hafi leikið hann grátt. Hann greindist árið 2023 með þriðja stigs ristilkrabbamein og segir það í raun hafa verið það besta sem kom fyrir hann. 19. desember 2025 16:48
James Van Der Beek stígur fram: „Ég hef verið gripinn í rassinn af eldri og valdameiri mönnum“ "Ég hef skilning á skömminni, vanmættinu og vangetunni við að segja frá“ 12. október 2017 14:32