Kúba og sviftingar í heimsmálunum Gylfi Páll Hersir skrifar 12. febrúar 2026 17:01 Það hefur ekki farið hátt hér á landi að um síðustu mánaðarmót gaf Donald Trump fyrirmæli þar sem kveðið er á um refsingar gagnvart þeim þjóðum sem selja eða útvega Kúbu olíu. Nokkrum vikum fyrr stöðvaði Bandaríkjastjórn allan flutning á olíu frá Venesúela til Kúbu, og síðan frá Mexíkó, og hafði uppi hótanir við kúbönsk stjórnvöld: “semjið núna, áður en það verður um seinan”. Efnahagslegt og pólitískt stríð Bandaríkjanna á hendur Kúbu hefur staðið linnulaust í bráðum 70 ár og er án hliðstæðu. Ýmsum aðferðum hefur verið beitt til þess að gera Kúbu erfitt fyrir, ekki bara að kaupa olíu heldur matvæli, lyf og lækningavörur og aðrar nauðsynjar að ekki sé minnst á bankaviðskipti. Vegna þessa er nú dagleg orkuskömmtun í landinu, flestir fá rafmagn einungis í nokkrar klukkustundir á dag. Með því að koma í veg fyrir að olía berist til landsins hyggst stjórn Trump svínbeygja íbúana og neyða þá til þess að fara að sínum tilskipunum. Réttlæting stjórnvalda er sú að af Kúbu stafi “óvenjuleg og stórkostleg [unusual and extraordinary] ógn“ við þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Hver er þessi ógn? Ráðastéttin í Bandaríkjunum (þar er enginn munur á stjórn Demókrata og Repúblikana) er staðráðin í að ganga frá fordæmi alþýðubyltingarinnar á Kúbu sem losaði landið undan arðráni auðvaldsstéttarinnar, færði vinnandi fólki völdin og sýndi í leiðinni að til eru aðrir valkostir en miskunnarlaust arðrán, fasismi og stríð. „Þeir sem kenna byltingunni um það alvarlega efnahagsástand sem þeir neyða upp á okkur ættu að skammast sín. Vegna þess að þeir vita að erfiðleikarnir stafa af þeirri miklu harðneskju sem Bandaríkjastjórn hefur beitt okkur í sex áratugi og hóta nú að herða”, áréttaði Miguel Díaz-Canel forseti Kúbu á fjölmennum mótmælum fyrir framan Hagsmunaskrifstofu Bandaríkjanna í Havana, daginn eftir að bandarískir hermenn rændu forseta Venesúela og eiginkonu hans. 32 kúbanskir ríkisborgarar, hjálparsveitarmenn og lífverðir, höfðu verið felldir í þeim aðgerðum. “Þeir sem snúa öllu upp í viðskiptahagsmuni, jafnvel mannslífum, hafa engan siðferðislegan rétt til að lesa okkur pistilinn”. Forseti Kúbu orðar þetta enn fremur svo: “Það er mjög ámælisvert að stórþjóð á borð við Bandaríkin skuli haga sér á svo árásargjarnan og glæpsamlegan hátt gagnvart lítilli þjóð. Hvaða afleiðingar hefur það í för með sér ef ekki einn einasti olíudropi berst til landsins?... Hvernig getum við haldið úti skólastarfi fyrir börnin okkar án olíu? Hvernig getum við haldið samfélaginu gangandi án olíu? Hvernig getum við dreift matvælum? Hvernig getum við plægt og undirbúið jörðina, eða staðið að uppskerunni? Hvernig komumst við af?“ ” Kúba er þjóð friðar, samstöðu og samvinnu,” sagði í yfirlýsingu frá ríkisstjórn Kúbu. “hún er líka þjóð hetjulegrar baráttu fólks. Heimsvaldasinnar gera mistök ef þeir telja fullir sjálfstraust, að með efnahagslegum þrýstingi samfara hræðilegum afleiðingum fyrir milljónir manna, muni þeir geta komið í veg fyrir að við verjum fullveldi þjóðarinnar.” Hálf milljón Kúbana gekk til minningar um landa sína 32 sem féllu í Venesúela í árás Bandaríkjanna. Heræfingar fara nú fram í landinu, verkalýðsfélög og fjöldasamtök halda fundi til þess að búa sig undir hugsanlega innrás. “Bandaríkjastjórn vill að ný ríkisstjórn taki við völdum á Kúbu fyrir árslok ,” sagði í fyrirsögn Wall Street Journal fyrir skemmstu. Þar var haft eftir sjálfsöruggum bandarískum embættismönnum, eftir að hafa rænt Maduro, að þeir væru í fullum gangi með að “leita að innanbúðarmanni í Kúbustjórn sem getur aðstoðað okkur” við ríkisstjórnarskiptin. Litlar líkur eru á að þeir finni hann þar. Þá má bæta því við að atferli bandarískra hermanna og staðsetning herskipa í Karíbahafi nýtur ekki vinsælda í Bandaríkjunum, sem endurspeglast t.d. í ágreiningi stuðningsmanna stjórnarliða. Höfundur situr í stjórn VÍK (Vináttufélagi Íslands og Kúbu) og hefur margsinnis sótt Kúbu heim. Hann er líka áhugasamur um það sem er á seyði í heiminum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kúba Donald Trump Gylfi Páll Hersir Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar