Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Jakob Bjarnar skrifar 13. febrúar 2026 11:52 Ómar segir að sjálfur hafi hann fengið á sitt borð mál af þessu tagi; að þeir sem eru á ADHD-lyfjum hafi verið sviptir ökuleyfi vegna þess að þeir voru með amfetamín í blóðinu. Fólk verði að hafa læknisvottorð öllum stundum. vísir/samsett Ómar R. Valdimarsson hæstaréttarlögmaður segist nokkrum sinnum hafa verið með mál þar sem fólk hafi leitað til hans með slíkan vanda; það var á löglegum ADHD-lyfjum en svipt bílprófi vegna amfetamínneyslu. Ástæðan: Það var ekki með læknisvottorð. Ómar segir stífa dómaframkvæmd vegna mála af þessu tagi.
Ómar ritar grein um þennan vanda sem hann birtir á Vísi. Þar segir hann að þúsundir Íslendinga á ADHD-lyfjum séu einu stoppi hjá lögreglu frá því að missa bílprófið í allt að 18 mánuði. Þetta er vegna gáleysis, þau eru ekki með læknisvottorð í vasanum sem staðfestir að þau séu fær um að aka bíl þrátt fyrir að taka ADHD-lyfin sín. Stíf dómaframkvæmd „Lögin gera nefnilega engan sérstakan greinarmun á fullkomlega löglegum ADHD-lyfjum og amfetamíni sem selt er í dimmum húsasundum,“ segir Ómar. Samkvæmt 50. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 er enginn sem er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja hæfur til að stjórna ökutæki. Mælist slíkt efni í blóði ökumanns telst hann sjálfkrafa óhæfur til aksturs. Og skiptir þá engu máli hvort viðkomandi telji sig vera með allt á hreinu, afleiðingarnar séu ekkert grín: Svipting ökuréttar í allt að 18 mánuði og að lágmarki 100.000.- króna sekt. En þó er til undanþága, að ef ökumaður notar lyfseðilskylt lyf getur hann sloppið undan þessu en þá aðeins að hann sé með slíkt leyfi við hendina. Einn af hverjum 10 fullorðnum Íslendingum á aldrinum 18–44 ára tekur ADHD-lyf daglega. Ómar fullyrðir að langflestir þessara notenda hafi aldrei heyrt af lagaákvæðinu sem gæti haft af þeim bílprófið – og enn færri vita hvernig þeir geta sloppið við að eiga það á hættu. Heimsmeistarar í notkun ADHD-lyfja Vísir greindi einmitt, í september 2023 frá hremmingum pars sem lenti í þessu. Hjónin Valdimar og Hanna María Randrup, íbúar í Hveragerði, voru handtekin í fyrrakvöld þar sem amfetamín fannst í blóði þeirra vegna ADHD lyfsins Elvanse sem þau eru á. Að sögn Ómars láta landsmenn ekki að sér hæða þegar notkun ADHD-lyfja er annars vegar. Árið 2023 notuðu 14.7% ungmenna á aldrinum 7–17 ára ADHD-lyf. Hjá fullorðnum 18–44 ára var hlutfallið 10.2% – 9.4% karla og 11% kvenna, samkvæmt niðurstöðu rannsóknar sem birt var í Læknablaðinu árið 2024. „Frá árinu 2010 hefur notkun aukist um 414% hjá körlum og 543% hjá konum á þessu aldursskeiði. Íslendingar eiga vitaskuld höfðatölu-heimsmetið hér eins og í flestum öðrum greinum og frændur okkar í Noregi og Svíþjóð eiga ekki séns í okkur: Við notum 13 sinnum meira af ADHD-lyfjum en Norðmenn og þrisvar sinnum meira en Svíar. Árið 2023 var notkun hér á landi 66,5 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag – þreföld meðaltalsnotkun Norðurlandanna.“ Læknar hljóti að axla ábyrgð Ómar segir að langflestir þessara nýju notenda ADHD-lyfja, eða heil áttatíu prósent, séu fullorðnir einstaklingar sem aka til vinnu, sækja börn í skóla og lifi eðlilegu lífi. Þessi hópur fari stækkandi en um áramótin 2023-2024 biðu 2.100 manns eftir greiningu. Að sögn lögmannsins þurfa læknar sem ávísa ADHD-lyfjum að taka ábyrgð. Læknisvottorð um aksturshæfni á að vera sjálfsagður hluti af hverri einustu ávísun á amfetamínskyldri meðferð. „Þar til þetta breytist er heppilegra fyrir þær þúsundir Íslendinga sem taka þessi lyf daglega geri ákveðnar ráðstafanir: Panta tíma hjá lækninum sínum, óska eftir vottorðinu og taka svo strætó þegar þeir ætla sækja það,“ er ráðlegging Ómars til þeirra sem taka ADHD-lyf.
Lögreglan ADHD Lyf Tengdar fréttir Dæmi um að fólk reyni að útvega sér ADHD-lyf á svörtum markaði ADHD lyfið Elvanse hefur verið ófáanlegt hér á landi í rúman mánuð. Dæmi eru um að fólk reyni að útvega lyfið á svörtum markaði. Forstjóri Lyfjastofnunar brýnir fyrir fólki að nota ekki annarra manna lyf. 25. ágúst 2023 17:44 Lífið breyttist: Fékk ADHD greiningu 33 ára og faðir hans um sjötugt „Eins og allir vita þá er „normal“ ekki til. Ef allir væru eins þá væri líf okkar allra heldur snautt. Punktur,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna. 3. nóvember 2021 07:01 Bæði mest notuðu fíkniefni á Íslandi og gífurlega hjálpleg lyf Haraldur Erlendsson geðlæknir sem hefur fengist við ADHD-greiningar í á þriðja áratug segir að ADHD sé sennilega dýrasti sjúkdómur mannkynsins. Hann telur að hátt í 15% þjóðarinnar séu haldin sjúkdómnum, þótt aðeins 5% séu með greiningu. Lyf geti skipt sköpum þótt það þekkist að þau séu misnotuð. 23. september 2022 09:02 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira
Dæmi um að fólk reyni að útvega sér ADHD-lyf á svörtum markaði ADHD lyfið Elvanse hefur verið ófáanlegt hér á landi í rúman mánuð. Dæmi eru um að fólk reyni að útvega lyfið á svörtum markaði. Forstjóri Lyfjastofnunar brýnir fyrir fólki að nota ekki annarra manna lyf. 25. ágúst 2023 17:44
Lífið breyttist: Fékk ADHD greiningu 33 ára og faðir hans um sjötugt „Eins og allir vita þá er „normal“ ekki til. Ef allir væru eins þá væri líf okkar allra heldur snautt. Punktur,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna. 3. nóvember 2021 07:01
Bæði mest notuðu fíkniefni á Íslandi og gífurlega hjálpleg lyf Haraldur Erlendsson geðlæknir sem hefur fengist við ADHD-greiningar í á þriðja áratug segir að ADHD sé sennilega dýrasti sjúkdómur mannkynsins. Hann telur að hátt í 15% þjóðarinnar séu haldin sjúkdómnum, þótt aðeins 5% séu með greiningu. Lyf geti skipt sköpum þótt það þekkist að þau séu misnotuð. 23. september 2022 09:02