Atvinnulíf

Draumurinn um hvítu jakka­fötin og Ferrari á bíla­planinu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, elskaði Miami Vice þættina sem unglingur. Fannst þeir svo töff og var sannfærður um að einn daginn myndi hann eiga fullan fataskáp af hvítum jakkaföt og Ferrari úti á bílaplani.  
Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, elskaði Miami Vice þættina sem unglingur. Fannst þeir svo töff og var sannfærður um að einn daginn myndi hann eiga fullan fataskáp af hvítum jakkaföt og Ferrari úti á bílaplani.   Vísir/Vilhelm

Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Á virkum dögum vakna ég yfirleitt um hálf sjö. Nema þegar stressið bankar upp á, þá vakna ég löngu á undan vekjaraklukkunni. Ég bý með B-týpum, þannig að ég er sá eini sem stillir klukku. Ég er í raun heimilisvekjaraklukkan. 

Um helgar tek ég stundum metnaðarfulla stefnu á að sofa út en man samt ekki hvenær það tókst síðast.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég fer fram, undirbý hundamatinn og næ mér í kaffi. Svo vek ég konuna með kaffibolla og hundinn með morgunmatnum, bæði þurfa álíka mikla hvatningu til að fara á fætur. Næst eru það krakkarnir og síðan morgunganga með hundinn. Dagurinn byrjar sem sagt í skipulagðri keðjuvakningu.“

Hvaða sjónvarpssería var í uppáhaldi þegar þú varst unglingur?

Miami Vice, klárlega. 

Þeir voru svo ótrúlega töff, stíllinn, tónlistin og bílarnir. 

Ég var sannfærður um að ég myndi einhvern daginn eiga fataskáp fullan af hvítum jakkafötum og Ferrari á planinu. 

Ég áttaði mig aðeins seinna á því að það var örlítið meiri munur á Miami og Reykjavík en ég hafði gert ráð fyrir því ég vinn í hugbúnaðargeiranum sem er aðeins minna svalt. En fyrirtækið heitir allavega Wise, það er eitthvað.“

Jóhannes skráir allt í dagatalið. Það sem ekki er skráð þar, einfaldlega gerist ekki. Á morgnana fer hann yfir verkefni dagsins og forgangsraðar tímanum.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Heima er ég mest að útskýra hvað við gerum seinna frekar en núna en í Wise erum við að leggja mikla áherslu á gervigreind, skilvirkni og sjálfvirkni. 

Það snýst bæði um að hjálpa viðskiptavinum að nýta tæknina betur og að bæta eigin rekstur. 

Okkar viðskiptavinir eru fyrst og fremst fyrirtæki og sveitarfélög þannig að ég er mikið að hitta stjórnendur þeirra. 

Samhliða því erum við stöðugt að færa lausnir og þjónustu ofar í skýið, þannig fá viðskiptavinir okkar hraðari innleiðingar, betra öryggi og lausnir sem skalast eftir þörfum þeirra.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Án góðs skipulags missi ég einfaldlega of marga bolta.

Tæknin bjargar mér, allt fer í dagatal og verkefnastýringu; þar stóla ég á IT-nördinn í sjálfum mér. 

Heima gildir einföld regla: „Ef það er ekki í calendarinu, þá er það ekki að fara að gerast.“ 

Það fyrsta sem ég geri á morgnana - eftir kaffi og hund - er að fara yfir daginn og forgangsraða tímanum.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég reyni að vera kominn upp í rúm um ellefu. Já, þetta er mjög miðaldra, en góður nætursvefn er einfaldlega besta framleiðnitólið og eitthvað sem gervigreindin leysir ekki af hólmi. 

Ég á þó það til að vera enn að horfa á símann um miðnætti og sannfæra sjálfan mig um að „þetta sé bara rétt í smástund.“


Tengdar fréttir

„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“

Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin.

Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“

Hreggviður Steinar Magnússon, Reggie,  framkvæmdastjóri Ceedr, segir stundum þurfa að minna eiginkonuna á háttatímann. Því nú sé hún komin með prjónaveikina frá ömmu sinni. Hreggviður  segir rómantík snúast um að segja ég elska þig á marga ólíka vegu.

Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi

Ólöf Kristjánsdóttir, CMO hjá Taktikal og formaður WomenTechIceland, sveiflast á milli þess að fasta á morgnana eða borða morgunmat. Enda hvoru tveggja sagt svo hollt. Hárið er orðið óstýrilátara en áður og þrátt fyrir rándýran búnað tekst henni illa að venja sig á kaffi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×