Samgönguráð: Fyrir landið allt eða eitt kjördæmi? Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 06:00 Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra. Samgönguráð er bundið embættistíma ráðherra og skal skipað þremur fulltrúum, tveimur án tilnefningar og einum tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í samgönguráði sitja nú: • Bragi Þór Thoroddsen, formaður, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, • Alexandra Jóhannesdóttir, varaformaður, sveitarstjóri á Skagaströnd, • Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fyrrverandi sveitarstjóri á Blönduósi. Innviðaráðherra er Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis. Þegar bæði ráðherra og allt samgönguráð sem mótar tillögur um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar og forgangsröðun samgönguframkvæmda um land allt tengjast sama landsvæði, vakna eðlilega upp spurningar um jafnræði og sanngirni í ákvarðanatöku um uppbyggingu innviða landsins. Slík vinnubrögð grafa undan trausti til forgangsröðunar samgönguframkvæmda og vekja eðlilega upp efasemdir um hvort heildarhagsmunir landsins ráði þar í raun för. Samgönguinnviðir eru þjóðarmál. Tryggja verður ávallt að forgangsröðun þeirra byggist á faglegu mati, gagnsæi og þörfum landsins alls. Höfundur er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Múlaþing Samgönguáætlun Samgöngur Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra. Samgönguráð er bundið embættistíma ráðherra og skal skipað þremur fulltrúum, tveimur án tilnefningar og einum tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í samgönguráði sitja nú: • Bragi Þór Thoroddsen, formaður, sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi, • Alexandra Jóhannesdóttir, varaformaður, sveitarstjóri á Skagaströnd, • Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fyrrverandi sveitarstjóri á Blönduósi. Innviðaráðherra er Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis. Þegar bæði ráðherra og allt samgönguráð sem mótar tillögur um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar og forgangsröðun samgönguframkvæmda um land allt tengjast sama landsvæði, vakna eðlilega upp spurningar um jafnræði og sanngirni í ákvarðanatöku um uppbyggingu innviða landsins. Slík vinnubrögð grafa undan trausti til forgangsröðunar samgönguframkvæmda og vekja eðlilega upp efasemdir um hvort heildarhagsmunir landsins ráði þar í raun för. Samgönguinnviðir eru þjóðarmál. Tryggja verður ávallt að forgangsröðun þeirra byggist á faglegu mati, gagnsæi og þörfum landsins alls. Höfundur er formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar