Þrír látnir í skotárás á íshokkíleik: „Hugsanlega vegna fjölskylduerja“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 06:29 Skotárásin varð gerð á íshokkíleik í Rhode Island. Getty/Pauline Ballet/ Skotárás á íshokkíleik í Rhode Island á mánudag varð þremur að bana, þar á meðal árásarmanninum, og þrír aðrir særðust. Leikmenn tveggja framhaldsskólaliða flúðu af svellinu þegar atburðurinn átti sér stað í miðjum leik.
Tina Goncalves, lögreglustjóri í Pawtucket, sagði fréttamönnum að einhver hefði hjálpað til við að binda skjótan enda á ofbeldisfullt atvikið á mánudagseftirmiðdegi með því að grípa inn í og reyna að yfirbuga árásarmanninn, sem var á leikvanginum til að horfa á íshokkíleik hjá fjölskyldumeðlim. At least two people have been killed and several were injured from a shooting at an ice skating rink in Rhode Island, authorities said. The shooting appears to be a targeted and "family-related," the Pawtucket Police chief said. @RhiannonAlly reports. https://t.co/xzmNrdPvCS pic.twitter.com/50qQzJAT1o— World News Tonight (@ABCWorldNews) February 17, 2026 Árásarmaðurinn lést af völdum skotsárs sem hann virðist hafa veitt sér sjálfur, sagði hún og tók fram að yfirvöld væru enn að rannsaka málið. Virðist hafi verið markviss árás „Svo virðist sem þetta hafi verið markviss árás, hugsanlega vegna fjölskylduerja,“ sagði hún. Goncalves nafngreindi árásarmanninn sem Robert Dorgan, sem hún sagði að hefði einnig gengið undir nafninu Roberta Esposito og væri fæddur árið 1969. Goncalves gaf ekki upplýsingar um aldur þeirra sem létust, en sagði að svo virtist sem bæði fórnarlömbin hefðu verið fullorðnir. Þeir þrír sem særðust voru á sjúkrahúsi í lífshættu á mánudagskvöld. Skotárásin átti sér stað í stúkunni á Dennis M. Lynch Arena í Pawtucket, nokkrum kílómetrum fyrir utan Providence. Leikurinn í beinni útsendingu Leikur framhaldsskólaliðanna tveggja var í beinni útsendingu. Nokkur byssuskot heyrðust á myndbandi sem síðar birtist á samfélagsmiðlum þar sem leikmenn og þjálfarar hlupu af svellinu á gagnstæðum enda skautasvellsins. Önnur myndbönd sýndu nokkra leikmenn, enn á skautum, leita skjóls í nærliggjandi verslunum. „Ég var á svellinu og hélt fyrst að þetta væru blöðrur,“ sagði Olin Lawrence, markvörður í öðru liðinu, við WJAR, NBC-stöðina í Rhode Island. „Það heyrðist bara popp, popp, popp og ég hélt að þetta væru blöðrur. En það hélt bara áfram og þetta voru í raun byssuskot. Og eftir skothríðina hlupu ég og liðsfélagar mínir beint inn í búningsklefa og földum okkur þar inni. Við þrýstum okkur upp að hurðinni og reyndum bara að vera öruggir.“ „Þetta var mjög ógnvekjandi“ „Þetta var mjög ógnvekjandi. Við vorum mjög stressaðir.“ Fyrir utan leikvanginn mátti sjá grátandi fjölskyldur og framhaldsskólaleikmenn í íshokkíbúningum faðmast áður en þeir fóru um borð í rútu til að yfirgefa svæðið. Vegum í kringum leikvanginn var lokað vegna mikils lögregluviðbúnaðar en þeir voru opnaðir aftur seint á mánudagseftirmiðdegi. Í færslu á samfélagsmiðlum sagði Boston Bruins-liðið vera „sorgmætt yfir því að staður sem ætlaður er til að fagna íshokkí og sameina fólk hafi orðið fyrir slíku ofbeldi.“ #BreakingNews: Man who shot 2 dead at a Pawtucket Rhode Island hockey game today identified as Robert Dorgan, aka Roberta Esposito. Dorgan shot & killed two family members & himself, sending three others with gunshot wounds to hospital in critical condition. pic.twitter.com/emyq4JUJkV— The New Westminster Times (@NewWestTimes) February 17, 2026 Stóru íþróttaliðin Red Sox, Patriots, Celtics og Revolution sendu öll frá sér stuðningsyfirlýsingar. Skotárásin á sér stað tæpum tveimur mánuðum eftir að Rhode Island varð fyrir öðrum hörmulegum atburði tengdum byssuofbeldi í Brown-háskóla, þar sem byssumaður myrti tvo nemendur og særði níu aðra. Sá árásarmaður myrti einnig prófessor við Tækniháskólann í Massachusetts. Yfirvöld fundu síðar Claudio Neves Valente, 48 ára, látinn af völdum skotsárs sem hann veitti sér sjálfur í geymsluaðstöðu í New Hampshire. „Sem betur fer eru atvikin tvö ótengd, en þetta er mjög sorglegt,“ sagði Don Grebien, borgarstjóri Pawtucket. „Þetta eru krakkar í framhaldsskóla, þau voru á viðburði, þau voru að spila fyrir framan áhorfendur og svo breyttist þetta í þetta.“ BREAKING:Pawtucket Police Chief confirms the suspect in the Hockey Arena Shooting is Robert Dorgan who was born male and also went by the name of ‘Roberta Esposito’. https://t.co/kvectNgX8j pic.twitter.com/lleHcvZPcY— Benny Johnson (@bennyjohnson) February 17, 2026
Íshokkí Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Leik lokið: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjá meira