Tók í spaðann á Gene Simmons: „You would be popular in jail“ Stefán Árni Pálsson skrifar 17. febrúar 2026 13:02 Páll er einn mesti Kiss aðdáandi landsins. Umhverfissálfræðinginn Páll Jakob Líndal þekkja margir úr almennri umræðu um samspil umhverfis og andans en færri vita að hann er einn harðasti aðdáandi hljómsveitarinnar KISS á landinu. Ísland í dag heimsótti Pál og fór yfir hvað það er við KISS sem hefur heillað í öll þessi ár. „
Stærsta stundin í lífi mínu er þetta hérna stöff. Það eru fyrstu tónleikarnir. Þetta eru tónleikar 22. mars 1999 í Bersi-höllinni í París. Þarna eru upprunalegir meðlimir,“ segir Páll. „Ég gjörsamlega tapaði mér,“ segir Páll og bætir við að þetta hafi í raun verið hans helsta augnablik í lífinu. Páll uppgötvaði KISS þegar hann var um tíu ára aldurinn. „Þarna er lagið Lick it Up nýlega komið út,“ segir Páll sem var frekar seinn á KISS-vagninn miðað við sína jafnaldra. Þarna upphófst mikil eyðimerkurganga því flestir bekkjarfélagar hans höfðu sagt skilið við KISS og byrjaðir að halda upp á Duran Duran. Lífstíll Það má segja að þessi eyðimerkurganga hafi varað til ársins 1996 þegar upprunalegir meðlimir KISS komu aftur saman og blásið var til tónleikaferðalags. Þetta ferðalag sló í gegn á heimsvísu, sló raunar ýmis met. Uppreist æru fyrir KISS-liða og aðdáendur þeirra. Síðan þá hafa meðlimir KISS haldið aðdáendum sínum við efnið með alls kyns viðburðum, varningi og tónleikum, allt þar til sveitin hætti að troða upp í lok árs 2023. En hvað er það við KISS sem heillar? Varla er það bara tónlistin? „KISS í mínum huga er í raun bara lífsstíll. Þetta er bara hugmyndafræði. Fyrir mig hefur KISS skipt töluverðu máli því þeir bjuggu til konsept, fylgdu konseptinu eftir algjörlega óháð hvað öðrum fannst um það sem þeir voru að gera. Þannig að þeir fylgdu sínum draumum. Ég hef nýtt mér það,“ segir Páll. KISS-ástin er sem sagt djúp. „Maður hefur leitað í KISS þegar hefur harðnað á dalnum. Þeir hjálpa manni að komast aftur upp á yfirborðið.“ Páll myndaði fyrri KISS-saumaklúbbinn árið 1997 í félagi við aðra og sá hópur hittist reglulega til ársins 2000. Svo má segja að árið 2014 hafi verið örlagaár þegar kemur að KISS-maníunni sem Páll segir að heltaki sig því þá gekk hann í nýstofnaða aðdáendaklúbbinn KISS Army Iceland. Í kringum stofndaginn voru heil átta hundruð manns sem skráðu sig eins og skot í þennan friðsama her. Í kjölfarið var annar saumaklúbbur stofnaður, hlaðvarpi um KISS hleypt af stokkunum og ábreiðsveitin KISS stofnuð þar sem Páll er söngvari. Páll og KISS-saumaklúbburinn fór tvisvar í KISS-skemmtiferðasiglingu þar sem hópurinn hitti alla meðlimi KISS og fékk með þeim mynd. Í fyrra skiptið stillti Páll sér upp með hetjunum í bleikri skyrtu, með svitabletti í handarkrikunum. Þá stóð ekki á orðheppni Gene Simmons, aðalmannsins í KISS, sem sagði við Pál: „You would be popular in jail.“ Sjón er sögu ríkari en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Sjá meira