Aumingjar Jökull Leuschner Veigarsson skrifar 18. febrúar 2026 08:15 Vorið 2022 tók Ísland sögulega ákvörðun. Í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins var ákveðið að virkja 44. grein útlendingalaga vegna fjöldaflótta. Við opnuðum faðminn fyrir Úkraínumönnum sem flúðu hræðilegt stríð og sögðum einfaldlega: hingað eruð þið velkomin. Hér er öruggt skjól og hér getið þið byggt upp nýtt líf. Lögin sem við studdumst við, nr. 80/2016, voru skýr. Þau fólu í sér loforð um að ef stríðið drægist á langinn gæti þetta fólk síðar sótt um ótímabundið dvalarleyfi. Þetta voru reglur sem við settum sjálf. Loforð sem við gáfum sjálf. Nú, þegar á reynir, virðist ríkisstjórnin hins vegar ætla að bakka. Með nýju frumvarpi á að draga þetta loforð til baka eftir á og svipta þúsundir Úkraínumanna, sem þegar hafa hafið líf hér og fest rætur, þeirri framtíðarvon sem þeim var rétt. Hvernig getur það gerst að stjórnmálamenn sem tala um ábyrgð, festu og frelsi sýni slíkan heigulshátt? Það er auðvelt að setja lög þegar stemningin er góð og allir klappa. Nú reynir á. Við settum þessi lög sjálf, virkjuðum þau í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins og veittum um 4.500 Úkraínumönnum vernd og skjól. Þá hlýtur spurningin að vera einföld: ætlum við nú að standa við eigin ákvörðun eða ekki? Í stað þess að standa fast á sínu er nú vísað í skrifræði. Við þurfum að samræma okkur Evrópu, er sagt. Hvenær varð það hluti af íslenskri hægrimennsku að hlaupa frá eigin ákvörðunum af því að embættismenn í Brussel gera hlutina öðruvísi? Þetta snýst ekki um abstrakt kerfi heldur raunverulegt fólk. Úkraínumenn hafa sýnt ótrúlega seiglu síðustu ár. Þegar þeir segjast ætla að gera eitthvað, þá standa þeir við það. Hvort sem það er að verja heimaland sitt eða mæta til vinnu á Íslandi til að sjá fyrir fjölskyldunni sinni. Þetta er fólk sem hefur aðlagast samfélaginu okkar hratt og lagt sitt af mörkum til atvinnulífsins. Spurningin sem situr eftir er einföld. Af hverju ættum við að vera eitthvað minni menn? Ef Úkraínumenn geta staðið við sitt við nær ómögulegar aðstæður, af hverju geta íslenskir stjórnmálamenn ekki staðið við sín eigin lög? Ef við viljum breyta lögum til framtíðar er það hægt. En við tökum ekki ákvörðun eftir á sem rífur teppið undan fólki sem við buðum sjálf velkomið. Það er ekki aðeins efnahagslega skammsýnt á tímum þar sem erlent vinnuafl heldur uppi hagkerfinu okkar, heldur er það einfaldlega til skammar. Stöndum við okkar orð. Sýnum hvers íslenskt loforð er virði. Höfundur er hinn versti múlbundni Pírati sem sækist eftir 3.-4. sæti listans í borginni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Innrás Rússa í Úkraínu Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar