Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Árni Sæberg skrifar 18. febrúar 2026 16:55 Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Ívari Gísla Vignissyni, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga táningsstúlku sem tengist honum fjölskylduböndum. Hann bar fyrir sig að sönnunarmat Landsréttar hefði verið í skötulíki þar sem sakfelling hans hefði fyrst og fremst byggt á því að tiltekin Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í málinu síðdegis en dómur Landsréttar féll í mars í fyrra. Með dómi Landsréttar var dómi héraðsdóms snúið við og því féllst Hæstiréttur á áfrýjunarleyfisbeiðni hans. Ítarlega reifun á dómi Landsréttar má lesa í fréttinni hér að neðan: Í dómi Hæstaréttar segir að Ívar Gísli hafi krafist ómerkingar dóms Landsréttar og byggt meðal annars á því að sönnunarmat hans hefði ekki samrýmst reglum laga um meðferð sakamála. „Æjj Sorry !!!“ Sakfelling hans hefði fyrst og fremst verið byggð á því að Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum en sú úrlausn réttarins verið röng og forsendur dómsins afar óáreiðanlegar. Þá hefði ekki verið reynt að ganga úr skugga um áreiðanleika gagnanna við rannsókn lögreglu. Skilaboðin sem um ræðir voru eftirfarandi: STÚLKAN: [Nafn mannsins] það sem gerðist um helgina er ekki í lagi MAÐURINN: Nei veit það STÚLKAN: [Nafn mannsins] ég var í engu ástandi þú veist ég vildi þetta alls ekki MAÐURINN: Æjj Sorry !!!! Mer liður mjöög illa yfir þessu Var ekki í ástandi heldur þá það sé enginn afsökun STÚLKAN: Nei það er engin afsökun, ég treysti þer og þú fokkaðir upp MAÐURINN: Mer liður ógeðslega illa yfir þessu [tjákn: grátandi andlit] er ekki svona gaur og þú veist það, geri allt til að bæta þetta !!! Angrins hef ekkert sofið og gæfi allt til að taka þetta til baka STÚLKAN: Nei eg veit hef sjálf sofið illa þetter ekki góð staða sem þú hefur sett mig í MAÐURINN: Bið þig afsökunar frá hjartanu [Nafn stúlkunnar], hvað get ég gert ? STÚLKAN: Takk fyrir það ég veit þer liður ekki vel með þetta ég veit það en ég þarf virkilega að hugsa málið MAÐURINN: Ok gerðu það [tjákn: hjarta] Sönnun reist á heildarmati Í dóminum segir Hæstiréttur hafi ekki talið efni til að fallast á ómerkingarkröfu Ívars Gísla og vísað einkum til þess að í hinum áfrýjaða dómi hefði verið fjallað með ítarlegum hætti um þessi sönnunargögn og um leið tekin afstaða til varna Ívars Gísla þar að lútandi. Niðurstaða um sönnun hefði verið reist á heildarmati allra sönnunargagna málsins, þar á meðal framburði Ívars Gísla og vitna. Auk þess hefðu ekki komið fram vísbendingar um uppruna samskiptagagnanna sem sköpuðu skynsamlegan vafa að þessu leyti. Um efnishlið málsins rakti Hæstiréttur að niðurstaða Landsréttar hefði verið reist á heildstæðu mati á öllum sönnunargögnum. Frásögn konunnar hefði þar verið metin trúverðug auk þess sem hún hefði verið talin fá stuðning í framburði vitna en að fyrir hendi væru atriði sem drægju úr trúverðugleika framburðar Ívars Gísla. Það mat yrði ekki endurmetið af Hæstarétti, samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu Ívars Gísla. Með hliðsjón af verulegum og óútskýrðum töfum á rannsókn lögreglu og í ljósi ungs aldurs hans hafi þótt mega staðfesta forsendur og niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu hans, sem ákveðin hafi verið fangelsi í tvö ár en fullnusta 21 mánaðar bundin almennu skilorði. Dómsmál Kynferðisofbeldi Samfélagsmiðlar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira
Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í málinu síðdegis en dómur Landsréttar féll í mars í fyrra. Með dómi Landsréttar var dómi héraðsdóms snúið við og því féllst Hæstiréttur á áfrýjunarleyfisbeiðni hans. Ítarlega reifun á dómi Landsréttar má lesa í fréttinni hér að neðan: Í dómi Hæstaréttar segir að Ívar Gísli hafi krafist ómerkingar dóms Landsréttar og byggt meðal annars á því að sönnunarmat hans hefði ekki samrýmst reglum laga um meðferð sakamála. „Æjj Sorry !!!“ Sakfelling hans hefði fyrst og fremst verið byggð á því að Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum en sú úrlausn réttarins verið röng og forsendur dómsins afar óáreiðanlegar. Þá hefði ekki verið reynt að ganga úr skugga um áreiðanleika gagnanna við rannsókn lögreglu. Skilaboðin sem um ræðir voru eftirfarandi: STÚLKAN: [Nafn mannsins] það sem gerðist um helgina er ekki í lagi MAÐURINN: Nei veit það STÚLKAN: [Nafn mannsins] ég var í engu ástandi þú veist ég vildi þetta alls ekki MAÐURINN: Æjj Sorry !!!! Mer liður mjöög illa yfir þessu Var ekki í ástandi heldur þá það sé enginn afsökun STÚLKAN: Nei það er engin afsökun, ég treysti þer og þú fokkaðir upp MAÐURINN: Mer liður ógeðslega illa yfir þessu [tjákn: grátandi andlit] er ekki svona gaur og þú veist það, geri allt til að bæta þetta !!! Angrins hef ekkert sofið og gæfi allt til að taka þetta til baka STÚLKAN: Nei eg veit hef sjálf sofið illa þetter ekki góð staða sem þú hefur sett mig í MAÐURINN: Bið þig afsökunar frá hjartanu [Nafn stúlkunnar], hvað get ég gert ? STÚLKAN: Takk fyrir það ég veit þer liður ekki vel með þetta ég veit það en ég þarf virkilega að hugsa málið MAÐURINN: Ok gerðu það [tjákn: hjarta] Sönnun reist á heildarmati Í dóminum segir Hæstiréttur hafi ekki talið efni til að fallast á ómerkingarkröfu Ívars Gísla og vísað einkum til þess að í hinum áfrýjaða dómi hefði verið fjallað með ítarlegum hætti um þessi sönnunargögn og um leið tekin afstaða til varna Ívars Gísla þar að lútandi. Niðurstaða um sönnun hefði verið reist á heildarmati allra sönnunargagna málsins, þar á meðal framburði Ívars Gísla og vitna. Auk þess hefðu ekki komið fram vísbendingar um uppruna samskiptagagnanna sem sköpuðu skynsamlegan vafa að þessu leyti. Um efnishlið málsins rakti Hæstiréttur að niðurstaða Landsréttar hefði verið reist á heildstæðu mati á öllum sönnunargögnum. Frásögn konunnar hefði þar verið metin trúverðug auk þess sem hún hefði verið talin fá stuðning í framburði vitna en að fyrir hendi væru atriði sem drægju úr trúverðugleika framburðar Ívars Gísla. Það mat yrði ekki endurmetið af Hæstarétti, samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu Ívars Gísla. Með hliðsjón af verulegum og óútskýrðum töfum á rannsókn lögreglu og í ljósi ungs aldurs hans hafi þótt mega staðfesta forsendur og niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu hans, sem ákveðin hafi verið fangelsi í tvö ár en fullnusta 21 mánaðar bundin almennu skilorði.
STÚLKAN: [Nafn mannsins] það sem gerðist um helgina er ekki í lagi MAÐURINN: Nei veit það STÚLKAN: [Nafn mannsins] ég var í engu ástandi þú veist ég vildi þetta alls ekki MAÐURINN: Æjj Sorry !!!! Mer liður mjöög illa yfir þessu Var ekki í ástandi heldur þá það sé enginn afsökun STÚLKAN: Nei það er engin afsökun, ég treysti þer og þú fokkaðir upp MAÐURINN: Mer liður ógeðslega illa yfir þessu [tjákn: grátandi andlit] er ekki svona gaur og þú veist það, geri allt til að bæta þetta !!! Angrins hef ekkert sofið og gæfi allt til að taka þetta til baka STÚLKAN: Nei eg veit hef sjálf sofið illa þetter ekki góð staða sem þú hefur sett mig í MAÐURINN: Bið þig afsökunar frá hjartanu [Nafn stúlkunnar], hvað get ég gert ? STÚLKAN: Takk fyrir það ég veit þer liður ekki vel með þetta ég veit það en ég þarf virkilega að hugsa málið MAÐURINN: Ok gerðu það [tjákn: hjarta]
Dómsmál Kynferðisofbeldi Samfélagsmiðlar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira