Smyglaði sér inn í Ólympíuþorpið til að styðja kærustu sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 06:30 Ólympíumeistarinn Mikaela Shiffrin hoppar hér á verðlaunapallinum með verðlaun sín ásamt silfurverðlaunahafanum Camille Rast og svissneska bronsverðlaunahafanum Anna Swenn Larsson sem er lengst til hægri. Getty/Michael Kappeler Bronsverðlaunahafinn Anna Swenn-Larsson upplifði martraðarundirbúning fyrir svigkeppni Ólympíuleikanna. Þá kom Mattias Rönngren til bjargar til að styðja við kærustuna sína.
Á síðustu Ólympíuleikum ferilsins vann Anna Swenn-Larsson sín fyrstu Ólympíuverðlaun en leiðin að bronsinu var allt annað en auðveld. Daginn fyrir svigkeppni Ólympíuleikanna fór allt úrskeiðis á æfingu. Allt fór úrskeiðis „Það fór sennilega ekki fram hjá neinum í skíðaheiminum að hlutirnir gengu ekki upp í gær. Við áttum í smá vandræðum með samsetninguna þarna uppi en hún tók sig saman í andlitinu og leysti þetta ótrúlega vel,“ sagði Charlie Laban, þjálfari hennar. @Sportbladet Það var sérstök samsetning í fyrri ferðinni sem olli Swenn-Larsson svo miklum áhyggjum að hún gat varla sofið. „Ég er ekki svo góð í að fela tilfinningar mínar. Reyndar er ég yfirleitt nokkuð góð í svona samsetningum, en allt helltist yfir mig. Ég var ekki svo viðkunnanleg á æfingunni í gær eftir að hafa farið þrisvar út úr braut í fjórum ferðum. Ég fór sennilega í gegnum þessa samsetningu hundrað sinnum í nótt. En smá svefnleysi á ekki að stöðva mig,“ sagði Swenn-Larsson við Aftonbladet. Vandræðin urðu til þess að kærastinn Mattias Rönngren, sem er einnig skíðamaður, kom til að styðja við kærustuna sína. Ég vissi ekki að hann myndi koma „Hann kom á hótelið í gær. Ég vissi ekki að hann myndi koma. Jafnvel þótt hann hafi kannski ekki mátt koma inn á Cortina tók hann áhættuna því hann vissi að ég hefði átt erfiðan dag,“ sagði Swenn-Larsson. Til að komast inn í Cortina á Ólympíuleikunum þarf maður límmiða á bílinn. Rönngren hafði hann ekki en tókst samt að smygla sér inn í Ólympíuþorpið. „Hann er minn stærsti stuðningsmaður af öllum. Við höfum verið saman í 14 ár. Hann þýðir ótrúlega mikið fyrir mig og gerir allt fyrir mig. Hann gerir meira fyrir mig en sjálfan sig. Það er kannski ekki alltaf gott þegar hann stundar sömu íþrótt,“ sagði bronsverðlaunahafinn. Glöð og grátandi þegar við hittumst Rönngren sjálfur var hrærður eftir bronsið. „Hún hefur lagt mjög hart að sér fyrir þessi verðlaun. Að ná þessu á síðustu Ólympíuleikunum hennar er alveg frábært. Hún var frekar glöð og grátandi þegar við hittumst. Á síðustu Ólympíuleikum hafði hún stór markmið en náði þeim ekki. Hún var frekar vonsvikin eftir það og ég hafði á tilfinningunni að hún myndi kannski ekki keppa á öðrum Ólympíuleikum. En það er kannski eitthvað sem hefur hvatt hana áfram,“ sagði hann. Jafnvel þótt Swen-Larsson hafi keppt á sínum síðustu Ólympíuleikum gæti ferillinn haldið áfram. „Ég hef ákveðið að ég keppi þetta tímabil til fulls með fullri einbeitingu. Svo ætla ég að taka því aðeins rólega og taka ákvörðun. Ég er ekki týpan sem vill keppa og lenda í topp 15. Ég vil gefa allt í þetta og hafa ástríðuna til að keppa eitt ár í viðbót. Það er alveg möguleiki á að það verði eitt ár í viðbót, en ekkert er ákveðið,“ sagði hún.
Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Fleiri fréttir FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Dagskráin í dag: Líflegur dagur í Bestu deildinni Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Kinu Rochford sagður myrtur Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Annar stórsigur strákanna á EM Strákarnir áfram í milliriðil á EM Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Sjá meira