Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 20:03 Snævar Steffensen Valdimarsson og Sunneva Rán Steingrímsdóttir fara með hlutverk Barbí og Ken í Nemendamótssýningu Verslunarskóla Íslands. Vísir/Bjarni Nemendamótið er jafnan hápunktur skólaársins hjá nemendum í Verzlunarskólanum sem hafa í ár sett upp söngleik sem byggir á sögu eins þekktasta leikfangs í heimi. Verkið sem sló í gegn á hvíta tjaldinu fyrir ekki svo löngu hefur nú verið sett í íslenskan búning þar sem þekkt íslensk dægurlög fá meðal annars að njóta sín.
Til að setja sýninguna á svið hefur íþróttahúsi skólans verið umbreytt í leikhús á meðan verkið Barbí er í sýningu. „Við erum í fimmtu sýningu af fimm á tveimur dögum,“ sagði Sunneva Rán Steingrímsdóttir, sem fer með hlutverk Barbí, þegar fréttastofa leit við í hléi síðdegis í dag. „Þetta er búið að vera ógeðslega skemmtilegt,“ segir Snævar Steffensen Valdimarsson sem leikur Ken. „Ég elska þessa mynd þannig ég var eiginlega búin að læra hana utan að,“ segir Sunneva, spurð hvernig hafi verið að setja sig inn í hlutverkið. Snævar segist ekki heldur hafa verið í vandræðum með að tengja við sinn karakter. „Heppilega hefur fólk sagt að ég sé bara nokkuð líkur Ken sem manneskja, orkumikill og pínu skrýtinn. En annars litaði ég bara hárið og fór í sprey-tan, það var það eina sem ég þurfti að gera,“ segir Snævar og hlær. Ryan Gosling og Margot Robbie fóru með hlutverk Barbie og Ken í Hollywood-útgáfunni sem mætti á hvíta tjaldið fyrir nokkrum árum. Getty/Wiktor Szymanowicz Nemendur skólans hafa þegar fengið tækifæri til að sjá verkið nú í Nemó-vikunni svokölluðu, en söngleikurinn fer nú í almenna sýningu þar sem öllum sem hafa áhuga gefst færi á að tryggja sér miða. En fyrir hvern er sýningin? „Stelpurnar,“ segir Sunneva sem er fljót að svara en stelpur, strákar og glíma þeirra við feðraveldið er stór þáttur í söguþræðinum. Þau eru þó bæði sammála um að sýningin sé ekki síður fyrir stráka sem þau hvetja sannarlega líka til að mæta. Höskuldur Þór Jónsson leikstjóri. Vísir/Bjarni Höskuldur Þór Jónsson leikstýrir sýningunni, en hann „Það er mjög gefandi að stíga inn í svona risa batterí með svona mörgum hæfileikaríkum krökkum, þetta er eiginlega bara alveg galið,“ segir Höskuldur. Fyrir utan þá miklu vinnu sem leikstjóri, leikarar, dansarar og söngvarar hafa lagt í sýninguna, þá er stór hópur annarra nemenda sem kemur að sýningunni með öðrum hætti, til dæmis við förðun, búninga, sviðsmynd og allt mögulegt. „Það er mikið búið að ganga á síðustu vikur,“ segir Höskuldur sem einnig skrifaði íslenskt handrit að verkinu fyrir uppsetningu Verzlinga.
Leikhús Framhaldsskólar Menning Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira